Meirihluti starfshóps norska fjármálaráðuneytisins um skattlagningu fiskeldis í sjó kveðst ekki sjá haldbær rök fyrir því að fiskeldi fái undanþágu frá almennri nálgun norska ríkisins er varðar atvinnugreinar sem nýta náttúruauðlindir, að því er fram kemur í skýrslu hópsins sem birt hefur verið á vef norska fjármálaráðuneytisins.
Leggur meirihlutinn þess vegna til að lagt verði á greinina auðlindagjald á sama grundvelli og gert er þegar um nýtingu annarra auðlinda er að ræða svo sem á hafsbotni (olíu og gas) og nýtingu fallvatna. Í tillögunni felst að sérstakur skattur verði innheimtur vegna fiskeldis í sjó og hann verði 40% á brúttóverðmæti í formi afkomutengds nýtingarskatts sem nemur um 2,1 norskri krónu á hvert framleitt kíló.
Gjaldið er sagt geta skilað ríkissjóði Noregs um sjö milljörðum norskra króna árlega, jafnvirði 95,2 milljarða íslenskra. Tekið er fram að fiskeldi er sveiflukennd atvinnugrein og mun það hafa mikil áhrif á tekjur af auðlindagjaldinu milli ára, en forsendur útreikninga áætlaðra tekna eru á grundvelli afkomu greinarinnar í Noregi árin 2013 til 2017.
Til samanburðar lagði starfshópur sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Íslands um sjókvíaeldi það til, í skýrslu sinni í desember 2018, að innheimtar yrðu allt að 15 íslenskar krónur á hvert kíló hér á landi sem myndi skila ríkissjóði um einum milljarði íslenskra króna í skatttekjur.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.4.24 | 499,79 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.4.24 | 634,24 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.4.24 | 370,72 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.4.24 | 140,96 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.4.24 | 197,72 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.4.24 | 265,14 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 18.4.24 | 172,93 kr/kg |
Litli karfi | 18.4.24 | 70,38 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
18.4.24 Hólmi ÞH 56 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 3.955 kg |
Skarkoli | 55 kg |
Samtals | 4.010 kg |
18.4.24 Vonin NS 41 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 4.023 kg |
Þorskur | 219 kg |
Skarkoli | 122 kg |
Samtals | 4.364 kg |
18.4.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Steinbítur | 5.909 kg |
Þorskur | 3.631 kg |
Skarkoli | 325 kg |
Hlýri | 28 kg |
Ýsa | 16 kg |
Samtals | 9.909 kg |
18.4.24 Jón Pétur RE 411 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.104 kg |
Þorskur | 22 kg |
Samtals | 1.126 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.4.24 | 499,79 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.4.24 | 634,24 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.4.24 | 370,72 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.4.24 | 140,96 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.4.24 | 197,72 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.4.24 | 265,14 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 18.4.24 | 172,93 kr/kg |
Litli karfi | 18.4.24 | 70,38 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
18.4.24 Hólmi ÞH 56 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 3.955 kg |
Skarkoli | 55 kg |
Samtals | 4.010 kg |
18.4.24 Vonin NS 41 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 4.023 kg |
Þorskur | 219 kg |
Skarkoli | 122 kg |
Samtals | 4.364 kg |
18.4.24 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Steinbítur | 5.909 kg |
Þorskur | 3.631 kg |
Skarkoli | 325 kg |
Hlýri | 28 kg |
Ýsa | 16 kg |
Samtals | 9.909 kg |
18.4.24 Jón Pétur RE 411 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.104 kg |
Þorskur | 22 kg |
Samtals | 1.126 kg |