17 þúsund tunnur af saltsíld

Áætlað er að framleiddar verði um 17 þúsund tunnur af …
Áætlað er að framleiddar verði um 17 þúsund tunnur af saltsíld á yfirstandandi vertíð. mbl.is/Albert Kemp

Nóg er að gera í Loðnuvinnslunni og er verið að vinna 650 tonn af síld sem Hoffell kom með að bryggju í gærkvöldi. „Um er að ræða íslenska síld sem er sumargotssíld og skilur þar á milli norsk-íslensku síldarinnar sem er vorgotssíld. Því eru þessir mánuðir snemma vetrar aðal veiðitími íslensku síldarinnar,“ segir á vef Loðnuvinnslunnar.

Haft er eftir Grétari Arnþórssyni, verkstjóra síldarverkunar fyrirtækisins, að um sé að ræða fína síld sem er söltuð í flök og bita. Hún verður síðan send til Kanada, Svíþjóðar og Danmerkur. Hann segir að áætlað sé að saltað verði í um 17 þúsund tunnur af síld á þessu ári.

Loðnuvinnslan er eini framleiðandi saltsíldar sem eftir er á landinu.
Loðnuvinnslan er eini framleiðandi saltsíldar sem eftir er á landinu. mbl.is/Albert Kemp

Mikið gæðaeftirlit er með vinnslu síldar og segir Grétar vinnsluna hafa gengið vel enda sé Loðnuvinnslan vel búin tækjum og vélbúnaði sem gerir það að verkum að aðeins þurfi að mata og hafa eftirlit.

Þá segir á vef Loðnuvinnslunnar að síldarverkun hafi tekið miklum breytingum „frá þeim tíma að konur stóðu og skáru og söltuðu síld og karlar sáu um  önnur störf í kring. Þá var hægt að spjalla saman og gjarnan kallað hátt þegar það vantaði tunnu eða salt. En nútíminn er annar, nú sinna bæði konur og karlar vélunum og vegna hávaða er ekki hægt að spjalla við vinnuna.“

Verkstjórinn segir þó aðstæður nú „miklu betri“ enda hafi eldri aðferð verið mun erfiðari.

Síld á færibandi Loðnuvinnslunnar.
Síld á færibandi Loðnuvinnslunnar. mbl.is/Albert Kemp
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 446,51 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,26 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.4.24 Hafdís NS 68 Grásleppunet
Grásleppa 1.116 kg
Þorskur 29 kg
Samtals 1.145 kg
20.4.24 Lundey SK 3 Grásleppunet
Grásleppa 1.943 kg
Þorskur 123 kg
Ufsi 51 kg
Samtals 2.117 kg
20.4.24 Björn Hólmsteinsson ÞH 164 Grásleppunet
Grásleppa 1.397 kg
Þorskur 42 kg
Samtals 1.439 kg
20.4.24 Helga Sæm ÞH 70 Grásleppunet
Grásleppa 1.464 kg
Þorskur 52 kg
Samtals 1.516 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 446,51 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,26 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

20.4.24 Hafdís NS 68 Grásleppunet
Grásleppa 1.116 kg
Þorskur 29 kg
Samtals 1.145 kg
20.4.24 Lundey SK 3 Grásleppunet
Grásleppa 1.943 kg
Þorskur 123 kg
Ufsi 51 kg
Samtals 2.117 kg
20.4.24 Björn Hólmsteinsson ÞH 164 Grásleppunet
Grásleppa 1.397 kg
Þorskur 42 kg
Samtals 1.439 kg
20.4.24 Helga Sæm ÞH 70 Grásleppunet
Grásleppa 1.464 kg
Þorskur 52 kg
Samtals 1.516 kg

Skoða allar landanir »