Höskuldur og Guðmundur á miðin í Afríku

Heimildir ViðskiptaMoggans herma að tveir Íslendingar hafi séð tækifæri í …
Heimildir ViðskiptaMoggans herma að tveir Íslendingar hafi séð tækifæri í að hefja veiðar á brynstirtlu, einnig þekktri sem hrossamakríl, við strendur Máritaníu. Ljósmynd/Valerian Guillot

Samkvæmt gögnum sem ViðskiptaMogginn hefur undir höndum hafa þeir Höskuldur Þór Þórhallsson, lögmaður og fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins, og Guðmundur Örn Guðjónsson, starfsmaður Samherja í Afríku til 14 ára, leitað fjárfesta vegna áforma um að kaupa verksmiðjutogara með frystigetu fyrir allt að 150 tonn á dag fyrir 12 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði tæplega 1,5 milljarða íslenskra króna.

Fyrirhuguð kaup átti að gera á þessu ári með það fyrir sjónum að hefja veiðar á brynstirtlu, einnig þekkt sem hrossamakríl, við strendur Máritaníu í Vestur-Afríku í nóvember þessa árs. Áformunum er meðal annars lýst í áætlun um rekstur félags sem ekki hefur verið stofnað og á að bera heitið North Seafood ehf.

Höskuldur kveðst ekki geta tjáð sig um málið þar sem hann sé lögmaður og bundinn trúnaði. Guðmundur Örn segist ekkert kannast við málið, en það stangast á við frásagnir þeirra sem ViðskiptaMogginn hefur rætt við.

Höskuldur Þórhallsson, lögmaður og fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokks.
Höskuldur Þórhallsson, lögmaður og fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokks. Ljósmynd/Alþingi

Áætlunin nær til ársins 2027 og á þeim tíma eiga fjárfestar að fá greitt 32% af öllum arði úr félaginu. Ekki liggur fyrir hvort þeir Höskuldur og Guðmundur myndu fá þau 68% sem eftir standa, en það myndu vera um 7 milljarðar króna.

Er leitað var til Höskuldar til þess að afla upplýsinga um verkefnið sagði hann: „Ég er lögmaður og tek að mér alls kyns verkefni, en ég er bundinn trúnaði.“

Nánar er fjallað um málið í ViðskiptaMogganum í dag.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 454,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 531,95 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 230,63 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 180,22 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 179,96 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Sædís EA 54 Handfæri
Ufsi 164 kg
Karfi 86 kg
Samtals 250 kg
24.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 1.289 kg
Grásleppa 623 kg
Samtals 1.912 kg
24.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 2.478 kg
Þorskur 402 kg
Steinbítur 23 kg
Samtals 2.903 kg
24.4.24 Vestmannaey VE 54 Botnvarpa
Ýsa 27.235 kg
Þorskur 8.204 kg
Karfi 346 kg
Samtals 35.785 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 454,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 531,95 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 230,63 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 180,22 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 179,96 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Sædís EA 54 Handfæri
Ufsi 164 kg
Karfi 86 kg
Samtals 250 kg
24.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Þorskur 1.289 kg
Grásleppa 623 kg
Samtals 1.912 kg
24.4.24 Emilía AK 57 Grásleppunet
Grásleppa 2.478 kg
Þorskur 402 kg
Steinbítur 23 kg
Samtals 2.903 kg
24.4.24 Vestmannaey VE 54 Botnvarpa
Ýsa 27.235 kg
Þorskur 8.204 kg
Karfi 346 kg
Samtals 35.785 kg

Skoða allar landanir »