Strandaður bátur í Þistilfirði

Mynd sem tekin var þegar TF-EIR, þyrla Landhelgisgæslunnar, kom á …
Mynd sem tekin var þegar TF-EIR, þyrla Landhelgisgæslunnar, kom á strandstað í morgun í Þistilfirði. Mynd/Landhelgisgæslan

Björgunarsveitir frá Raufarhöfn og Þórshöfn hafa verið kallaðar út vegna báts sem er strandaður í Þistilfirði. Að sögn lögreglunnar á Norðurlandi eystra amar ekkert að áhöfn bátsins og hún ekki talin í neinni hættu. 

Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni hafði áhöfn línubátsins Lágey ÞH-265 samband við stjórnstöð Landhelgisgæslunnar klukkan 4:30 í nótt á fjarskiptarásinni VHF-16 og tilkynnti að bátinn hefði rekið í strand í vestanverðum Þistilfirði, um miðja vegu á milli Þórshafnar og Raufarhafnar.

Lágey er 15 tonna og 13 metra langur yfirbyggður trefjaplastbátur. Fjórir eru í áhöfn og fer vel um þá miðað við aðstæður. Veður er tiltölulega gott á strandstað, lögn og gott skyggni en svolítil hafalda.

Að sögn skipstjóra kæmust þeir í land á fjöru en vegna myrkurs sjá þeir ekki neitt frá sér. Varðstjórar í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar kölluðu þegar út áhöfn þyrlunnar TF-EIR og er áætlað að hún verði á strandstað um kl. 06:55.

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins á Þórshöfn og Raufarhöfn voru ræstar út og hafa björgunarskipið Gunnbjörg og línubáturinn Háey frá Raufarhöfn og harðbotna slöngubáturinn Jón Kr. frá Þórshöfn auk fiskibátsins Dags frá Þórshöfn haldið áleiðis að strandstað. Áætlað er að björgunarskipið Gunnbjörg verði við strandstað um sexleytið.

Björgunarsveitir hafa einnig farið landleiðina og freista þess með leiðsögn bónda af svæðinu að komast á strandstað en samkvæmt kortaupplýsingum eru brattar hlíðar upp af fjörunni þar sem Lágey ÞH-225  er strönduð.

Lágey ÞH-265.
Lágey ÞH-265. Morgunblaðið/Hafþór
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »