ÚR vill erlendar fjárfestingar í Brimi

Útgerðarfélag Reykjavíkur leggur til að Brim verði breytt í eignarhaldsfélag …
Útgerðarfélag Reykjavíkur leggur til að Brim verði breytt í eignarhaldsfélag til þess að auka óbeinar erlendar fjárfestingar í félaginu. mbl.is/Hari

Útgerðarfélag Reykjavíkur (ÚR) leggur til að hluthafar Brims hf. samþykki að fela stjórn að leita leiða til þess að auka aðkomu erlendra fjárfesta að Brimi hf. Meðal þess sem kemur til greina er að stofna félag, sem á hlut í íslensku eignarhaldsfélagi, í kauphöllina í Ósló.

ÚR, sem er eigandi 36,13% hlutafjár Brims, hefur ákveðið að leggja fyrir hlutahafafund þann 12. desember að stjórn verði falið að velja milli þriggja leiða til að „auka möguleika erlendra aðila til óbeinnar fjárfestinga í félaginu,“ að því er segir í tillögunni sem kynnt er í tilkynningu í dag.

Viðskiptablaðið sagði fyrst frá málinu.

Lagt er til að færa allan rekstur Brims hf. í dótturfélag sem er í 100% eigu þess. Kallast þessi „leið A“ og felur í sér að eftir tilfærsluna verður Brim ekki lengur útgerðarfélag heldur eignarhaldsfélag. „Skráning hlutafjár félagsins í íslenskri kauphöll verði óbreytt en erlendum aðilum þar með heimilað að eignast takmarkaðan hluta hlutafjársins,“ segir í tillögunni.

„Leið B“ er lýst þannig að stofnað verði erlent félag sem mun vera eigandi allt að 25% hlutafjár í íslensku félagi, sem á 100% hlutafjár í Brimi hf., verði tekið til skráningar og viðskipta í erlendum hlutabréfamarkaði. Er í þessu samhengi sérstaklega vísað til Óslóar í Noregi sem dæmi.

Þá er einnig lagt til undir svokallaðri „leið C“ að stjórn kanni hvort aðrar leiðir en tilgreindar hafa verið séu hagkvæmari fyrir félagið til þess að ná því markmiði að auka möguleika erlendra aðila á óbeinum fjárfestingum í Brimi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 2.6.23 377,45 kr/kg
Þorskur, slægður 2.6.23 495,84 kr/kg
Ýsa, óslægð 2.6.23 255,33 kr/kg
Ýsa, slægð 2.6.23 351,85 kr/kg
Ufsi, óslægður 2.6.23 242,70 kr/kg
Ufsi, slægður 2.6.23 293,65 kr/kg
Djúpkarfi 31.5.23 227,00 kr/kg
Gullkarfi 2.6.23 255,00 kr/kg
Litli karfi 15.5.23 10,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.6.23 308,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

3.6.23 Hrói SH-040 Grásleppunet
Grásleppa 3.370 kg
Samtals 3.370 kg
3.6.23 Gullbrandur NS-031 Grásleppunet
Grásleppa 1.063 kg
Skarkoli 6 kg
Samtals 1.069 kg
3.6.23 Anna Karín SH-316 Grásleppunet
Grásleppa 1.218 kg
Samtals 1.218 kg
3.6.23 Reginn ÁR-228 Þorskfisknet
Langa 1.945 kg
Þorskur 398 kg
Samtals 2.343 kg
3.6.23 Stuttnefja BA-408 Sjóstöng
Steinbítur 328 kg
Þorskur 134 kg
Samtals 462 kg

Skoða allar landanir »

Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 2.6.23 377,45 kr/kg
Þorskur, slægður 2.6.23 495,84 kr/kg
Ýsa, óslægð 2.6.23 255,33 kr/kg
Ýsa, slægð 2.6.23 351,85 kr/kg
Ufsi, óslægður 2.6.23 242,70 kr/kg
Ufsi, slægður 2.6.23 293,65 kr/kg
Djúpkarfi 31.5.23 227,00 kr/kg
Gullkarfi 2.6.23 255,00 kr/kg
Litli karfi 15.5.23 10,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 1.6.23 308,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

3.6.23 Hrói SH-040 Grásleppunet
Grásleppa 3.370 kg
Samtals 3.370 kg
3.6.23 Gullbrandur NS-031 Grásleppunet
Grásleppa 1.063 kg
Skarkoli 6 kg
Samtals 1.069 kg
3.6.23 Anna Karín SH-316 Grásleppunet
Grásleppa 1.218 kg
Samtals 1.218 kg
3.6.23 Reginn ÁR-228 Þorskfisknet
Langa 1.945 kg
Þorskur 398 kg
Samtals 2.343 kg
3.6.23 Stuttnefja BA-408 Sjóstöng
Steinbítur 328 kg
Þorskur 134 kg
Samtals 462 kg

Skoða allar landanir »