Forstjóri Samherja, Björgólfur Jóhannsson, segir í bréfi til starfsmanna að rannsókn sem fyrirtækið hrinti af stað vegna starfseminnar í Namibíu miði ágætlega. „Við vonumst til þess að niðurstöður hennar liggi fyrir fljótlega á nýju ári. Það er markmið okkar að félagið standi af sér storminn og komi mun sterkara í gegnum hann.
Ég veit að sum ykkar vildu að Samherji svaraði ásökunum á hendur fyrirtækinu af meiri krafti. Ekki velkjast í neinum vafa um að við munum leiðrétta allar rangfærslur um félagið. Við erum bara rétt að byrja. Sem betur fer hefur þetta mál ekki haft teljandi áhrif á reksturinn og það er fyrst og fremst ykkur að þakka,“ skrifar Björgólfur.
„Það er vöxtur í sölunni og veiðar og vinnsla ganga vel. Þá hafa samstarfsaðilar okkar hér heima og erlendis staðið með félaginu. Það er baráttuhugur í stjórnendum Samherja á öllum vígstöðvum og við erum sannfærð um að framtíð fyrirtækisins sé björt.“
Björgólfur segir í bréfinu sem ritað er til starfsmanna Samherja í dag, Þorláksmessu, að óveðrið sem lék landsmenn grátt fyrr í þessum mánuði hafi valdið tugmilljóna tjóni hjá fyrirtækinu.
„Rafmagnsleysið í kjölfar veðurofsans varð þess valdandi að öll vinnsla okar á Dalvík lá niðri í fimm daga og hleypur tjón vegna þess á tugum milljóna króna. Hins vegar tókst að afstýra tjóni vegna hráefnis og hluti starfsmanna á Dalvík færði sig yfir til Akureyrar þar sem við jukum framleiðsluna tímabundið meðan það var rafmagnslaust á Dalvík. Blessunarlega varð ekkert tjón á tækjabúnaði og skipum. Vinnsla hófst svo aftur á Dalvík síðastliðinn þriðjudag.
Ég vil nota þetta tækifæri til að koma á framfæri þakklæti til viðbragðsaðila fyrir þeirra óeigingjarna starf í kjölfar rafmagnsleysisins. Ég vil jafnframt þakka þeim starfsmönnum, sem færðu sig tímabundið til Akureyrar, alveg sérstaklega fyrir.