Sjávarútvegurinn með augum framtíðarfræðings

Helga Jósepsdóttir segir framtíðarfræðinga fyrst af öllu leggjast í ítarlega …
Helga Jósepsdóttir segir framtíðarfræðinga fyrst af öllu leggjast í ítarlega rannsóknarvinnu og starfa náið með æðstu stjórnendum til að koma auga á sniðugar lausnir og mögulegar hættur.

Það á við um sjávarútveginn eins og allar greinar atvinnulífsins að allt of sjaldan gefst tækifæri til að reyna að spá fyrir um framtíðina og virkja heilasellurnar til að finna sniðugar nýjar lausnir. Daglegur rekstur er alveg nógu krefjandi og svo er það líka þannig að hugsunarháttur fólks á það til að festast innan ákveðins ramma og þarf oft einhvern utanaðkomandi til að rýna í áskoranirnar og tækifærin frá alveg nýju sjónarhorni til að kveikja almennilega á perunum. Glöggt er gests augað, segir máltækið.

Ný stétt hefur komið fram á sjónarsviðið til að bregðast við þessari þörf. Framtíðarfræðingar (e. futurists) eru kallaðir að borðinu þegar stofnanir og fyrirtæki vilja leggjast í ítarlega naflaskoðun. Helga Jósepsdóttir er sjálfstætt starfandi framtíðarfræðingur með aðsetur í Madríd á Spáni þar sem hún er jafnframt aðjúnkt við IE Business School, óravegu frá æskuslóðunum á Eskifirði.

Helga ritar áhugaverða hugleiðingu í nýútkomnu riti Sjávarklasans, Bak við yztu sjónarrönd, þar sem hún hvetur greinina til dáða og segir íslenska sjávarútvegsgeirann geta haft afgerandi og jákvæð áhrif á heiminn. Henni þætti gaman ef sjávarútvegsfyrirtæk og hagsmunasamtök þeirra gerðu meira að því að nýta krafta framtíðarfræðinga enda næsta víst að þannig komi verðmæt þekking, innsæi og hugmyndir upp á yfirborðið.

Leita innblásturs víða

Framtíðarfræðingar nálgast verkefni sín með ólíkum hætti en Helga segir ekki óalgengt að fyrst af öllu þurfi að ráðast í ítarlega rannsóknarvinnu. „Í mínu tilviki fara oftar en ekki um þrjár vikur í að skoða viðkomandi grein mjög vandlega, hvaða hugmyndir eru þegar á sveimi og verkefni í pípunum. Hér kemur sér vel að þekkja þróunina sem víðast í atvinnulífinu innanlands og erlendis og mögulega koma auga á leiðir til að yfirfæra þekkingu og lausnir frá einu sviði yfir á annað. Útgangspunktur í minni ráðgjöf er ætíð að virðing og nýting séu höfð að leiðarljósi: að fyrirtæki og stofnanir umgangist starfsfólk sitt, viðskiptavini og umhverfi af virðingu og leitað sé lausna til að láta sem minnst fara til spillis, bæði af tíma, orku, erfiði og hráefnum.“

Afrakstur þessa fyrsta skrefs í starfi framtíðarfræðingsins er yfirleitt í formi ítarlegrar skýrslu og kynningar, þar sem bæði er gefið gott yfirlit yfir sviðið, helstu straumar í nýsköpun eru skilgreindir og kastljósinu beint að áhugaverðustu tækifærunum til umbreytingar fyrir fyrirtækið eða stofnunina sem í hlut á.

„Oftast er framtíðarfræðingurinn í mestu sambandi við framkvæmdastjóra eða aðra háttsetta stjórnendur innan fyrirtækja, s.s. markaðsstjóra, yfirmenn nýsköpunardeilda o.þ.h. og eftir grunnrannsóknina vinnur hann samhliða þeim að því að leggja drög að nýrri vöru eða þjónustu og finna leiðir til að koma enn betur til móts við viðskiptavinina og þeirra þarfir,“ segir Helga en viðfangsefni framtíðarfræðinga spanna allt frá stuttum og afmörkuðum verkefnum yfir í að þeir séu reglulegir gestir hjá fyrirtækjum um árabil og liðsauki þeirra í stefnumótun og hugmyndavinnu.

Tækifæri blasa við

Þegar hún horfir yfir sviðið í sjávarútveginum segir Helga að það fyrsta sem blasi við séu tækifæri sem snúa að bættri nýtingu. „Talað er um að af þeim skepnum sem mannfólkið nýtir sér til matar fari um 40-50% af hverju dýri til spillis. Í sjávarútvegi fer strax mikið af slógi beint út í sjóinn áður en komið er með aflann í land og víða í vinnsluferlinu sjáum við úrgang verða til sem hægt væri að breyta í verðmæti með réttum aðferðum og hugviti. Það er mjög margt gert tengt sjávarútveginum á Íslandi á þessu sviði, en alltaf má gera betur, og ég myndi ekki vilja sjá að nein framleiðslulína í heiminum bjóði upp á það að hluti hráefnisins sem fer í inn í hana, geti farið út úr henni án þess að gegna fyrirfram ákveðnu hlutverki,“ segir Helga.

„Þá hefur greinin ekki mikið sinnt þjónustuhönnun, þ.e. að gaumgæfa þarfir og óskir viðskiptavina, og sjómanna, og finna nýjar og sniðugar leiðir til að bæta upplifun þeirra af að kaupa, veiða, vinna og neyta sjávarafurða. Gott dæmi um árangurinn sem næst þegar þessu er vel sinnt er hvernig Niceland leyfir kaupendum að rekja slóð fisksins sem þeir kaupa allt frá miðum til verslunar eða veitingastaðar. Margt fleira er í deiglunni, eins og bálkakeðja og gagnagnótt, og þarf oft ekki annað en að kunna að spyrja réttu spurninganna til að koma auga á hvernig nýjar stefnur og straumar í tækni og neysluvenjum geta nýst sjávarútveginum.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 501,21 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 371,38 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 197,72 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 8.181 kg
Þorskur 404 kg
Skarkoli 88 kg
Ýsa 78 kg
Samtals 8.751 kg
18.4.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína
Steinbítur 3.179 kg
Þorskur 460 kg
Skarkoli 160 kg
Ýsa 94 kg
Samtals 3.893 kg
18.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 1.581 kg
Ýsa 18 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.616 kg
18.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 923 kg
Ýsa 369 kg
Þorskur 199 kg
Hlýri 78 kg
Skarkoli 56 kg
Langa 25 kg
Ufsi 18 kg
Samtals 1.668 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 501,21 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 371,38 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 197,72 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 8.181 kg
Þorskur 404 kg
Skarkoli 88 kg
Ýsa 78 kg
Samtals 8.751 kg
18.4.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína
Steinbítur 3.179 kg
Þorskur 460 kg
Skarkoli 160 kg
Ýsa 94 kg
Samtals 3.893 kg
18.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 1.581 kg
Ýsa 18 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.616 kg
18.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 923 kg
Ýsa 369 kg
Þorskur 199 kg
Hlýri 78 kg
Skarkoli 56 kg
Langa 25 kg
Ufsi 18 kg
Samtals 1.668 kg

Skoða allar landanir »