„Það er alls ekki hægt að kvarta yfir aflabrögðunum þegar við höfum getað verið að veiðum vegna veðurs. Vandinn er sá að það er alltaf kolvitlaust veður. Elstu reynsluboltarnir um borð muna ekki annað eins og ég held að ég muni það rétt að búið sé að gefa út 50 stormviðvaranir frá áramótum,“ er haft eftir Ævar Jóhannsson, skipstjóri á frystitogaranum Örfirisey RE, á vef Brims.
Hann segir veiðar hafi hafist 2. janúar á Vestfjarðarmiðum og að hafi verið góð ufsaveiði á Halanum „Dvölin á miðunum var þó skemmri en við áttum von á og við hröktumst á brott undan veðri. Austfjarðamið voru eini staðurinn sem hægt var að vera á og við fórum því þangað ásamt miklum fjölda skipa. Veiðin var góð en uppistaða aflans fyrir austan var þorskur sem ekki er okkar kjörtegund.“
Það var góð veðurspá fyrir miðin Suðvestur af landinu , að sögn Ævars en spáin gekk ekki eftir. „Því má segja að allan seinni hluta veiðiferðarinnar höfum við gripið þá dagsparta sem á annað borð hefur verið hægt að stunda veiðar,“ segir Ævar. Var Örfirisey í vari á Stakksfirði í fjóra sólarhringa. „Ein lægð á dag og hvassviðrið sem fylgir er ekki það versta. Sjólagið er verst og sjórinn nær ekki að ganga niður þó það dúri á milli lægða. Það er búin að vera 9-10 metra ölduhæð samkvæmt baujunni út af Garðskaga í lengri tíma og í slíku ofsaveðri er ekki hægt að stunda veiðar.“
Þá segir á vef Brims að Örfirisey komi til löndunar í Reykjavík í fyrramálið og að aflinn sé um 530 tonn.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 23.4.24 | 456,31 kr/kg |
Þorskur, slægður | 23.4.24 | 532,04 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 23.4.24 | 237,18 kr/kg |
Ýsa, slægð | 23.4.24 | 143,44 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 23.4.24 | 177,69 kr/kg |
Ufsi, slægður | 23.4.24 | 227,61 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 23.4.24 | 177,61 kr/kg |
Litli karfi | 19.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót | |
---|---|
Steinbítur | 3.980 kg |
Skarkoli | 1.183 kg |
Þorskur | 328 kg |
Sandkoli | 195 kg |
Ýsa | 82 kg |
Samtals | 5.768 kg |
23.4.24 Sandfell SU 75 Lína | |
---|---|
Þorskur | 2.549 kg |
Steinbítur | 321 kg |
Keila | 115 kg |
Ýsa | 98 kg |
Ufsi | 19 kg |
Karfi | 17 kg |
Langa | 7 kg |
Samtals | 3.126 kg |
23.4.24 Gunnar Bjarnason SH 122 Dragnót | |
---|---|
Steinbítur | 1.270 kg |
Samtals | 1.270 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 23.4.24 | 456,31 kr/kg |
Þorskur, slægður | 23.4.24 | 532,04 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 23.4.24 | 237,18 kr/kg |
Ýsa, slægð | 23.4.24 | 143,44 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 23.4.24 | 177,69 kr/kg |
Ufsi, slægður | 23.4.24 | 227,61 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 23.4.24 | 177,61 kr/kg |
Litli karfi | 19.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót | |
---|---|
Steinbítur | 3.980 kg |
Skarkoli | 1.183 kg |
Þorskur | 328 kg |
Sandkoli | 195 kg |
Ýsa | 82 kg |
Samtals | 5.768 kg |
23.4.24 Sandfell SU 75 Lína | |
---|---|
Þorskur | 2.549 kg |
Steinbítur | 321 kg |
Keila | 115 kg |
Ýsa | 98 kg |
Ufsi | 19 kg |
Karfi | 17 kg |
Langa | 7 kg |
Samtals | 3.126 kg |
23.4.24 Gunnar Bjarnason SH 122 Dragnót | |
---|---|
Steinbítur | 1.270 kg |
Samtals | 1.270 kg |