Með tæplega 600 tonn eftir brælutúr

Vigri RE
Vigri RE Ljósmynd/Brim

Frystitogarinn Vigri RE kom til hafnar í Reykjavík í dag með tæplega 600 tonna afla upp úr sjó eftir brælutúr á Vestfjarðamið, Austfjarðamið og Suðvesturmið.

Haft er eftir skipstjóranum, Eyþóri A. Scott, á vef Brims, útgerð togarans, að veiðiferðin hafi að mestu farið í að flæmast undan veðri og í sumum tilfellum einnig undan þorski enda hafi sú fisktegund ekki verið á óskalista útgerðarinnar fyrir túrinn.

„Við byrjuðum á að fara á Halamið. Þar fengum við góðan ufsaafla. Við náðum að skjótast austur í Þverál og veiða þar ýsu áður en við þurftum að fara inn á Ísafjarðardjúp til að komast í var fyrir stormi sem þá var yfirvofandi. Við vorum búnir að vera í vari í rúman hálfan sólarhring en þá gekk veðrið niður. Það má segja að þarna hafi opnast hálfs sólarhrings gluggi. Kostirnir, sem við stóðum frammi fyrir, voru eiginlega tveir. Koma sér sem fyrst í burtu og reyna fyrir sér í skárra veðri fyrir austan eða vera um kyrrt í Ísafjarðardjúpi næstu vikuna. Við völdum að sigla austur.”

Veiðin ágæt fyrir austan

Veiðin var ágæt fyrir austan að sögn Eyþórs. Byrjað var í Langaneskantinum en þaðan var farið á Digranesflak. Á báðum stöðum var þorskur uppistaða aflans. „Markmiðið var að veiða ekki of mikinn þorsk en eitthvað urðum við að gera. Við reyndum t.a.m. við ýsu á Tangaflaki en í heildina var uppistaða aflans fyrir austan þorskur,” segir Eyþór. Farið hafi verið aftur á Vestfjarðamið á bakaleiðinni.

„Við byrjuðum á Sléttugrunni og svo keyrðum við vestur að austurhorni Víkurálsins. Þar var ágætur afli. Mest gullkarfi og svo þorskur og ufsi í bland.” Síðustu dögum veiðiferðarinnar hafi svo verið varið á suðvesturmiðum.

„Við fengum fína gullkarfaveiði á Eldeyjarbankanum og enduðum svo veiðarnar grunnt í Skerjadjúpinu. Þar var aðallega verið að kanna stöðuna á djúpkarfanum og þótt við höfum fengið dálítinn afla þá var tíminn, sem við vorum þarna, alltof skammur. Við vorum ekki að veiðum nema tæpa átta tíma,” segir Eyþór.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Tryllir GK 600 Grásleppunet
Grásleppa 2.714 kg
Þorskur 637 kg
Steinbítur 25 kg
Rauðmagi 16 kg
Samtals 3.392 kg
24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Tryllir GK 600 Grásleppunet
Grásleppa 2.714 kg
Þorskur 637 kg
Steinbítur 25 kg
Rauðmagi 16 kg
Samtals 3.392 kg
24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »