Þéttar loðnutorfur við Papey

Börkur NK, skip Síldarvinnslunnar.
Börkur NK, skip Síldarvinnslunnar. mbl.is/Þorgeir

Þéttar og allstórar loðnutorfur voru mældar á afmörkuðu svæði suður og suðvestur af Papey á sunnudaginn. Birkir Bárðarson, fiskifræðingur á Hafrannsóknastofnun, segir að unnið sé að úrvinnslu gagna og reiknar með að þeirri vinnu ljúki í kvöld eða á morgun. „Við þurfum að átta okkur á því hversu mikið magn er þarna á ferðinni og hvort þetta er viðbót við það sem áður hefur verið mælt en við getum spáð í framhaldið,“ sagði Birkir.

Það voru skipverjar á Bjarna Ólafssyni AK, sem urðu varir við torfurnar á laugardaginn. Í kjölfarið var ákveðið að Börkur NK, Hákon EA og grænlenska skipið Polar Amaroq færu til mælinga og var farið yfir svæðið á sunnudag samkvæmt leitarlínum frá Hafrannsóknastofnun.

Í loðnumælingum rannsóknarskipsins Árna Friðrikssonar og fimm uppsjávarveiðiskipa í síðustu viku mældist minna af hrygningarloðnu samkvæmt fyrstu útreikningum heldur en í mælingu í byrjun febrúar. Í frétt frá Hafrannsóknastofnun síðasta föstudag kom fram að hverfandi líkur væru á að niðurstaðan breyttist verulega hér eftir.

„Þetta voru flottar lóðningar hérna vestur af Papey,“ segir Hálfdán Hálfdánsson, skipstjóri á Berki NK, um loðnumælinguna á sunnudaginn í samtali við Eyjafréttir í dag. „Ég geri mér enga grein fyrir því hvort þetta er nóg magn til að gefa tilefni til einhverrar bjartsýni. Svo vitum við ekkert hvort þetta er eitthvað sem er búið að mæla áður.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 3.980 kg
Skarkoli 1.183 kg
Þorskur 328 kg
Sandkoli 195 kg
Ýsa 82 kg
Samtals 5.768 kg
23.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 2.549 kg
Steinbítur 321 kg
Keila 115 kg
Ýsa 98 kg
Ufsi 19 kg
Karfi 17 kg
Langa 7 kg
Samtals 3.126 kg
23.4.24 Gunnar Bjarnason SH 122 Dragnót
Steinbítur 1.270 kg
Samtals 1.270 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 3.980 kg
Skarkoli 1.183 kg
Þorskur 328 kg
Sandkoli 195 kg
Ýsa 82 kg
Samtals 5.768 kg
23.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 2.549 kg
Steinbítur 321 kg
Keila 115 kg
Ýsa 98 kg
Ufsi 19 kg
Karfi 17 kg
Langa 7 kg
Samtals 3.126 kg
23.4.24 Gunnar Bjarnason SH 122 Dragnót
Steinbítur 1.270 kg
Samtals 1.270 kg

Skoða allar landanir »