Það hefur heldur betur verið góð kolmunnaveiði vestur af Írlandi og tókst áhöfninni á Bjarna Ólafssyni AK að ná 1.700 tonnum í fimm holum og hélt hann í átt til Íslands í gærmorgun. „Í þessum fimm holum var aflinn á bilinu frá 240 og upp í 735 tonn. Í stærsta holinu var einungis dregið í rúmlega 20 mínútur,“ er haft eftir Þorkeli Péturssyni, stýrimanni á Bjarna Ólafssyni, á vef Síldarvinnslunnar.
„Við misstum eitt hol vegna þess að pokinn sprakk, það var allt of mikið í honum. Þarna eru alveg feiknalegar lóðningar, þetta er bara eins og veggur. Menn þurfa að gæta sín vel á að fá ekki of mikið í trollið. Það var blíða á miðunum allan tímann sem við vorum að veiðum en nú er spáð verra veðri og við munum líklega fá einhver leiðindi á síðari hluta leiðarinnar. Þegar við lukum veiðum voru 820 mílur til Neskaupstaðar, þannig að siglingin er engin smádorra,“ segir Þorkell.
Fleiri skip hafa verið að veiðum á þessum miðum og lagði Margrét EA af stað til Íslands í nótt með tvö þúsund tonn og Börkur NK í morgun með 2.300 tonn. Beitir NK er enn að veiðum og hefur náð ágætum afla.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 27.3.24 | 401,44 kr/kg |
Þorskur, slægður | 27.3.24 | 443,15 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 27.3.24 | 183,92 kr/kg |
Ýsa, slægð | 27.3.24 | 136,03 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 27.3.24 | 107,02 kr/kg |
Ufsi, slægður | 27.3.24 | 189,28 kr/kg |
Gullkarfi | 27.3.24 | 143,21 kr/kg |
Litli karfi | 27.3.24 | 8,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 27.3.24 | 120,00 kr/kg |
28.3.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.961 kg |
Þorskur | 217 kg |
Samtals | 3.178 kg |
28.3.24 Helga Sæm ÞH 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 4.013 kg |
Samtals | 4.013 kg |
28.3.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 898 kg |
Þorskur | 92 kg |
Skarkoli | 13 kg |
Samtals | 1.003 kg |
28.3.24 Fengur EA 207 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.217 kg |
Þorskur | 104 kg |
Skarkoli | 14 kg |
Rauðmagi | 4 kg |
Samtals | 1.339 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 27.3.24 | 401,44 kr/kg |
Þorskur, slægður | 27.3.24 | 443,15 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 27.3.24 | 183,92 kr/kg |
Ýsa, slægð | 27.3.24 | 136,03 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 27.3.24 | 107,02 kr/kg |
Ufsi, slægður | 27.3.24 | 189,28 kr/kg |
Gullkarfi | 27.3.24 | 143,21 kr/kg |
Litli karfi | 27.3.24 | 8,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 27.3.24 | 120,00 kr/kg |
28.3.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.961 kg |
Þorskur | 217 kg |
Samtals | 3.178 kg |
28.3.24 Helga Sæm ÞH 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 4.013 kg |
Samtals | 4.013 kg |
28.3.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 898 kg |
Þorskur | 92 kg |
Skarkoli | 13 kg |
Samtals | 1.003 kg |
28.3.24 Fengur EA 207 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.217 kg |
Þorskur | 104 kg |
Skarkoli | 14 kg |
Rauðmagi | 4 kg |
Samtals | 1.339 kg |