Vill undanþágu frá yfirtökuskyldu í Eimskip

Samherji sendi bréf til fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands í dag.
Samherji sendi bréf til fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands í dag.

Samherji Holding ehf., systurfélag Samherja, hefur sent fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands erindi þar sem félagið óskar eftir undanþágu frá yfirtökuskyldu eftir að félagið fór yfir mörk 30% eignarhlutar í Eimskip.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samherja.

Með tilkynningu og flöggun 10. mars kom fram að Samherji Holding hefði aukið hlut sinn í Eimskip um 3,05% og ætti 30,11% hlut í fyrirtækinu eftir kaupin. Samherji Holding myndi í framhaldinu senda öðrum hluthöfum Eimskips yfirtökutilboð um kaup á hlutabréfum þeirra innan fjögurra vikna eins og áskilið væri í lögum.

Með bréfi til fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands 20. mars óskaði Samherji Holding eftir undanþágu frá yfirtökuskyldunni vegna þeirra sérstöku aðstæðna sem hefðu skapast á fjármálamarkaði vegna útbreiðslu Covid-19. Í lögum um verðbréfaviðskipti er fjármálaeftirlitinu veitt heimild til að veita slíka undanþágu ef sérstakar ástæður mæla með því.

Í beiðni Samherja Holding kemur fram að uppi séu fordæmalausar aðstæður vegna þeirrar óvissu sem Covid-19 hafi skapað í efnahagsumhverfi Íslands.

„Á örfáum dögum hefur allt efnahagsumhverfið breyst stórlega, langt umfram það sem spár gerðu ráð fyrir. Áhrifin eru afar víðtæk og keðjuverkandi á fjármálamarkaði og á efnahagslífið í heild sinni. Við teljum ekki skynsamlegt að tilboð um yfirtöku fari fram í skugga þess mikla umróts sem nú á sér stað. Við vonum öll að aðstæður verði heppilegri fyrr en síðar. Trú okkar á framtíð Eimskips hefur ekkert breyst,“ segir Björgólfur Jóhannsson, starfandi forstjóri Samherja Holding, í tilkynningunni.

Málið er nú til skoðunar hjá fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands. Það getur sett skilyrði fyrir undanþágunni, til dæmis varðandi frest til að selja hluti sem eru umfram 30% eignarhlut og meðferð atkvæðisréttar á því tímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 496,08 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 362,62 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 196,14 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Sindri BA 24 Grásleppunet
Grásleppa 608 kg
Þorskur 16 kg
Skarkoli 9 kg
Samtals 633 kg
19.4.24 Ósk ÞH 54 Grásleppunet
Grásleppa 858 kg
Þorskur 60 kg
Skarkoli 19 kg
Ufsi 2 kg
Samtals 939 kg
19.4.24 Jón Bjarni BA 50 Grásleppunet
Grásleppa 368 kg
Steinbítur 30 kg
Þorskur 11 kg
Rauðmagi 7 kg
Skarkoli 1 kg
Samtals 417 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 496,08 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 362,62 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 196,14 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Sindri BA 24 Grásleppunet
Grásleppa 608 kg
Þorskur 16 kg
Skarkoli 9 kg
Samtals 633 kg
19.4.24 Ósk ÞH 54 Grásleppunet
Grásleppa 858 kg
Þorskur 60 kg
Skarkoli 19 kg
Ufsi 2 kg
Samtals 939 kg
19.4.24 Jón Bjarni BA 50 Grásleppunet
Grásleppa 368 kg
Steinbítur 30 kg
Þorskur 11 kg
Rauðmagi 7 kg
Skarkoli 1 kg
Samtals 417 kg

Skoða allar landanir »