Ungir frumkvöðlar hafa um árabil kynnt fyrirtæki sín í Smáralind. Nú er þeim boðið fjarkennsla vegna takmarkanna sem settar hafa verið vegna kórónuveirunar.mbl.is/Árni Sæberg
Íslenski sjávarklasinn hefur ákveðið að bjóða framhaldsskólanemendum fjarkennslu í stofnun og rekstri fyrirtækja. Hefðbundið hefur verið að nemendum sé boðið að heimsækja sprotafyrirtæki, en vegna þeirra aðstæðna sem skapast hafa í tengslum við kórónuveirufaraldurinn geta nemendur nú fengið kynningarnar á youtube-rás Sjávarklasans, að því er fram kemur á vef hans.
Þar segir að hundruð nemenda í framhaldsskólum hafa undanfarin ár fengið þjálfun í stofnun og rekstri fyrirtækja. Þá hefur sá hópur framhaldsskólanemenda, sem stundað hefur nám á þessu sviði, vaxið mjög hratt síðustu ár.
Bent er á að JA – fyrirtækjasmiðjan hefur boðið skólum að liðsinna við námið og að í náminu séu nemendur hvattir til að koma viðskiptahugmynd í framkvæmd með því að stofna fyrirtæki. Nemendurnir hafa síðan kynnt fyrirtæki sín í Smáralind um árabil, en Sjávarklasinn er aðili að verkefninu.
„Um 600 nemendur tóku þátt í fyrirtækjasmiðju í framhaldsskólum á árinu 2019 og stefnt var að töluverðri aukningu á þessu ári. Stór hluti þessara nemenda hefur á síðustu árum heimsótt nýsköpunarfyrirtæki og kynnt sér stofnun þeirra og rekstur,“ segir á vef Sjávarklasans.
Hins vegar verður ekkert af þessu í ár vegna þeirra takmarkanna sem gripið hefur verið til til þess að stöðva útbreiðslu kórónuveirunnar. Í staðinn hefur Sjávarklasinn ákveðið að láta gera kennsluefni sem gæti nýst nemendum í fjarnámi. „Þar eru viðtöl við stofnendur nýsköpunarfyrirtækja sem segja frá tilurð sinna fyrirtækja og hvernig hugmyndin hefur þróast í raunverulegt fyrirtæki. Þá gefa stofnendurnir nemendunum, sem nú eru að undirbúa stofnun sinna fyrirtækja í fyrirtækjasmiðju framhaldsskólanna, góð ráð.“
Þegar eru til staðar níu kynningar og eru fleiri kynningar væntanlegar. Jafnframt er stefnt að því að þær verði birtar á menntavef RÚV. Þá er Ísfélag Vestmannaeyja og Marel stuðningsaðilar kennslumyndbandanna, að því er segir á vef Íslenska sjávarklasans.
Við hjá Árvakri viljum vekja athygli á því sem vel er gert á þessum
erfiðu tímum. Ef þú ert með góða sögu af fyrirtækjum og einstaklingum
sem eru að gera gott, sendu okkur ábendingu á netfangið
stondumsaman@mbl.is.