Metmánuður að baki hjá áhöfninni á Bárði

Haldið var upp á þúsund tonnin í brúnni á Bárði …
Haldið var upp á þúsund tonnin í brúnni á Bárði með gómsætri og fallega myndskreyttri tertu í fyrrakvöld. Frá vinstri: Sæbjörn Ágúst Svavarsson, Guðjón Árnason, Eiríkur Gautsson, Pétur Pétursson yngri, Loftur Bjarnason, Jóhann Eiríksson, Pétur Péturson eldri, Helgi Már Bjarnason, Kristján Helgason og Höskuldur Árnason. mbl.is/Alfons Finnsson

Alls varð aflinn í marsmánuði hjá Bárði SH frá Ólafsvík 1.091 tonn og einhver kíló, eins og Pétur Pétursson, skipstjóri og útgerðarmaður, orðar það. Bárður er á netum og líklegt er að um metafla sé að ræða á netabát í einum mánuði.

„Strákarnir voru að gúggla þetta og fundu engin dæmi um svona mikinn afla,“ segir Pétur og í Morgublaðinu í dag og kunnáttumenn í þessum fræðum, sem rætt var við í gær, tóku undir það.

Bárður kom nýr til landsins frá Danmörku í lok síðasta árs og hóf róðra er líða tók á janúar. Frá áramótum er aflinn alls orðinn 1.869 tonn. Bárður er stærsti vertíðarbátur landsins sem smíðaður er úr plasti, en hann er 26,9 metra langur, sjö metra breiður og með 2,5 metra djúpristu.

Í mars komu þeir á Bárði mest með um 65 tonn að landi eftir daginn 4. mars úr átta trossum. Alls voru róðrarnir í mánuðinum 30 og landað var 31 sinni. Frá 21. mars reri Pétur eldri á gamla Bárði, sem er 15 metra og tæplega 30 metra plastbátur. Þar fiskaðist sömuleiðis mjög vel. Pétur sonur útgerðarmannsins tók þá við stjórn á nýja bátnum og landburðurinn hélt áfram.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,74 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 211,79 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,62 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 232,79 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Falkvard ÍS 62 Handfæri
Ufsi 276 kg
Karfi 12 kg
Samtals 288 kg
24.4.24 Rán SH 307 Handfæri
Þorskur 1.826 kg
Ufsi 664 kg
Karfi 5 kg
Samtals 2.495 kg
24.4.24 Þytur MB 10 Handfæri
Ufsi 40 kg
Samtals 40 kg
24.4.24 Kristján SH 176 Handfæri
Ufsi 90 kg
Karfi 2 kg
Samtals 92 kg
24.4.24 Sælaug MB 12 Handfæri
Ufsi 54 kg
Samtals 54 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,74 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 211,79 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,62 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 232,79 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Falkvard ÍS 62 Handfæri
Ufsi 276 kg
Karfi 12 kg
Samtals 288 kg
24.4.24 Rán SH 307 Handfæri
Þorskur 1.826 kg
Ufsi 664 kg
Karfi 5 kg
Samtals 2.495 kg
24.4.24 Þytur MB 10 Handfæri
Ufsi 40 kg
Samtals 40 kg
24.4.24 Kristján SH 176 Handfæri
Ufsi 90 kg
Karfi 2 kg
Samtals 92 kg
24.4.24 Sælaug MB 12 Handfæri
Ufsi 54 kg
Samtals 54 kg

Skoða allar landanir »