Áhafnir bíða eftir niðurstöðum úr skimun

Áhafnir kolmunnaskipanna bíða eftir niðurstöðunum úr skimuninni.
Áhafnir kolmunnaskipanna bíða eftir niðurstöðunum úr skimuninni. Ljósmynd/Smári Geirsson

Kolmunnaskip Síldarvinnslunnar í Neskaupstað liggja í Norðfjarðarhöfn og bíða áhafnir þeirra eftir niðurstöðu skimunar fyrir kórónuveirusjúkdómnum Covid-19. Ráðgert er að halda til veiða á gráa svæðinu suður af Færeyjum strax og niðurstaða liggur fyrir síðar í kvöld eða á morgun.

Á vef fyrirtækisins kemur fram að áhafnir Barkar NK og Beitis NK fóru í skimun eystra á laugardag og áhöfn Bjarna Ólafssonar AK fór einnig í skimun. Hjörvar Hjálmarsson, skipstjóri á Berki, segist vonast eftir að enginn sé sýktur og þá sé ekkert því til fyrirstöðu að leysa landfestar.

„Þetta hafa menn aldrei upplifað áður, en það er gríðarlega mikilvægt að haldið sé til veiða á fjarlæg mið á sóttfríu skipi. Í fyrra hófum við veiðar á gráa svæðinu 6. apríl og á undanförnum árum hefur veiði hafist þarna á bilinu 5.-12. apríl. Við höfum að vísu ekki fengið neinar fréttir af veiði þarna núna. Það er ekki óalgengt að á þessu svæði hafi verið byrjað að veiða geldfisk sem heldur sig þarna en síðan hefur göngufiskurinn komið inn á svæðið og veiði oft verið góð,“ segir Hjörvar. 

Brugðist skjótt við

Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar, segir að Íslensk erfðagreining og Heilbrigðisstofnun Austurlands eigi heiður skilið fyrir hvernig þau brugðust við bón fyrirtækisins um skimun áhafnanna. 

„Það voru 20 sjómenn af uppsjávarskipum frá okkur sem fóru í skimun á laugardaginn hjá þeim. Brugðist var mjög skjótt við beiðni okkar og var skimuninni komið við með skömmum fyrirvara. Við viljum senda Íslenskri erfðagreiningu og HSA okkar bestu þakkir fyrir. En þrátt fyrir skimunina er mikilvægt að sjómennirnir virði umgengnisreglur um borð í skipunum, haldi fjarlægð á milli sín, vandi sig við handþvott og sótthreinsun og svo framvegis. 

Þótt skimun leiði í ljós að menn séu ekki sýktir geta þeir samt borið veiruna þannig að öllum reglum verður að fylgja í hvívetna. Það er reyndar ánægjulegt að finna hvað starfsmenn fyrirtækisins eru tilbúnir að laga sig að þeim reglum sem settar hafa verið vegna Covid-19.  Þessu fylgja áskoranir, ýmsar skerðingar og breytingar. Ég er afar þakklátur þeim samtakamætti sem starfsmenn sýna nú á þessum erfiðu tímum þar sem við erum öll staðráðin í að gera það sem við getum til að forðast veiruna,“ segir Gunnþór.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 501,21 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 371,38 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 197,72 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 8.181 kg
Þorskur 404 kg
Skarkoli 88 kg
Ýsa 78 kg
Samtals 8.751 kg
18.4.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína
Steinbítur 3.179 kg
Þorskur 460 kg
Skarkoli 160 kg
Ýsa 94 kg
Samtals 3.893 kg
18.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 1.581 kg
Ýsa 18 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.616 kg
18.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 923 kg
Ýsa 369 kg
Þorskur 199 kg
Hlýri 78 kg
Skarkoli 56 kg
Langa 25 kg
Ufsi 18 kg
Samtals 1.668 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 501,21 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 371,38 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 197,72 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 8.181 kg
Þorskur 404 kg
Skarkoli 88 kg
Ýsa 78 kg
Samtals 8.751 kg
18.4.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína
Steinbítur 3.179 kg
Þorskur 460 kg
Skarkoli 160 kg
Ýsa 94 kg
Samtals 3.893 kg
18.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 1.581 kg
Ýsa 18 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.616 kg
18.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 923 kg
Ýsa 369 kg
Þorskur 199 kg
Hlýri 78 kg
Skarkoli 56 kg
Langa 25 kg
Ufsi 18 kg
Samtals 1.668 kg

Skoða allar landanir »