Páskaegg afhent með aðstoð lögreglu og í sprengjubíl

Páskaeggin eru ómissandi þáttur hátíðarinnar.
Páskaeggin eru ómissandi þáttur hátíðarinnar. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

Talsvert flækjustig var við dreifingu páskaeggja til starfsmanna Landhelgisgæslunnar vegna varúðarráðstafana sem stofnunin hefur gripið til vegna kórónuveirufaraldursins. Var því brugðið á það ráð að fá aðstoð séraðgerða- og sprengjueyðingarsveitar gæslunnar, að því er segir í fréttatilkynningu.

Egginn í öruggri fylgd til áhafnarinnar á Tý
Egginn í öruggri fylgd til áhafnarinnar á Tý Ljósmynd/Landhelgisgæslan

„Mannauðssvið Landhelgisgæslunnar stóð frammi fyrir skemmtilegu og krefjandi verkefni þegar kom að því að færa starfsmönnum páskaegg. Þar sem varúðarráðstafanir eru miklar hjá Landhelgisgæslunni, starfsemin dreifð og fjölbreytt var nauðsynlegt að hugsa í lausnum. Mannauðssvið með Svanhildi Sverrisdóttur í fararbroddi vildi alls ekki rjúfa þessa skemmtilegu hefð, þrátt fyrir aukið flækjustig, og fékk því séraðgerða- og sprengjueyðingarsveit Landhelgisgæslunnar til liðs við sig. Sveitin, sem er sannarlega á heimavelli þegar kemur að því að finna réttu lausnirnar, gekk rösklega til verks og beitti ýmsum aðferðum við dreifingu eggjanna.“

Þá segir í tilkynningunni að páskaeggin hafi verið afhent í gegnum glugga, stillt upp undir ströngu sóttvarnaeftirliti á flugvelli og flutt með öruggum sprengjubíl um borð í varðskipið Tý í Helguvík. Auk þess var fengin aðstoð frá lögreglunni á Vestfjörðum við að koma eggjunum um borð í varðskipið Þór sem nú er til taks í Ísafjarðardjúpi vegna veðurs.

Það var mikil kátína þegar skipverjarnir á varðskipinu Þór fengu …
Það var mikil kátína þegar skipverjarnir á varðskipinu Þór fengu eggin í hendur. Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Varðstjórinn Guðmundur Emil Sigurðsson kátur með eggin.
Varðstjórinn Guðmundur Emil Sigurðsson kátur með eggin. Ljósmynd/Landhelgisgæslan
Lögreglan á Vestfjörðum aðstoðuðu við að koma eggjunum til áhafnarinnar …
Lögreglan á Vestfjörðum aðstoðuðu við að koma eggjunum til áhafnarinnar á Þór. Ljósmynd/Landhelgisgæslan




mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 27.3.24 401,29 kr/kg
Þorskur, slægður 27.3.24 443,15 kr/kg
Ýsa, óslægð 27.3.24 182,08 kr/kg
Ýsa, slægð 27.3.24 136,03 kr/kg
Ufsi, óslægður 27.3.24 107,02 kr/kg
Ufsi, slægður 27.3.24 189,28 kr/kg
Gullkarfi 27.3.24 143,21 kr/kg
Litli karfi 27.3.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg
Blálanga, slægð 27.3.24 120,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

28.3.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet
Grásleppa 2.961 kg
Þorskur 217 kg
Samtals 3.178 kg
28.3.24 Helga Sæm ÞH 70 Grásleppunet
Grásleppa 4.013 kg
Samtals 4.013 kg
28.3.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet
Grásleppa 898 kg
Þorskur 92 kg
Skarkoli 13 kg
Samtals 1.003 kg
28.3.24 Fengur EA 207 Grásleppunet
Grásleppa 1.217 kg
Þorskur 104 kg
Skarkoli 14 kg
Rauðmagi 4 kg
Samtals 1.339 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 27.3.24 401,29 kr/kg
Þorskur, slægður 27.3.24 443,15 kr/kg
Ýsa, óslægð 27.3.24 182,08 kr/kg
Ýsa, slægð 27.3.24 136,03 kr/kg
Ufsi, óslægður 27.3.24 107,02 kr/kg
Ufsi, slægður 27.3.24 189,28 kr/kg
Gullkarfi 27.3.24 143,21 kr/kg
Litli karfi 27.3.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg
Blálanga, slægð 27.3.24 120,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

28.3.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet
Grásleppa 2.961 kg
Þorskur 217 kg
Samtals 3.178 kg
28.3.24 Helga Sæm ÞH 70 Grásleppunet
Grásleppa 4.013 kg
Samtals 4.013 kg
28.3.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet
Grásleppa 898 kg
Þorskur 92 kg
Skarkoli 13 kg
Samtals 1.003 kg
28.3.24 Fengur EA 207 Grásleppunet
Grásleppa 1.217 kg
Þorskur 104 kg
Skarkoli 14 kg
Rauðmagi 4 kg
Samtals 1.339 kg

Skoða allar landanir »