Skipulagðri dagskrá á sjómannadaginn í Reykjavík sunnudaginn 7. júní hefur verið aflýst í ár vegna aðstæðna í samfélaginu. Þetta er í fyrsta sinn í áttatíu og þriggja ára sögu ráðsins sem dagskránni er aflýst, en sjómannadagurinn var fyrst haldinn 1938, segir í fréttatilkynningu frá sjómannadagsráði.
Einnig kemur fram að dagskrá Hátíðar hafsins falli niður en hún hefði átt að fara fram 6. og 7. júní við gömlu höfnina í Reykjavík. Þá eru aðstandendur hátíðarinnar staðráðnir í að taka upp þráðinn á ný að ári með veglegri dagskrá á hafnarsvæðinu.
Hátíðarhöld hafa notið mikilla vinsælda.
mbl.is/Hari
Sjómannadagsráð höfuðborgarsvæðisins hefur allt frá árinu 1938 staðið að skipulagðri dagskrá á sjómannadaginn með minningarathöfn um drukknaða sjómenn, skrúðgöngu að Dómkirkjunni, þar sem árleg sjómannamessa fer fram auk heiðrunar sjómanna. Aldrei fyrr í sögu Sjómannadagsráðs hafa þessir viðburðir fallið niður enda er sjómannadagurinn ekki síst helgaður minningu látinna sjómanna, segir í tilkynningunni.
Sjómannadagsráð var stofnað 25. nóvember 1937. Það sinnir í dag velferðarmálum sjómanna og er jafnframt leiðandi aðili í öldrunarþjónustu á landinu. Ásamt og með dótturfélögum sínum; Hrafnistu, Naustavör, Happdrætti DAS og Laugarásbíói, veitir Sjómannadagsráð á annað þúsund manns í fimm sveitarfélögum daglega öldrunarþjónustu. Frá stofnun Sjómannadagsráðs til dagsins í dag hafa 1.328 sjómenn farist við störf sín og er sjómannadagurinn meðal annars tileinkaður minningu þeirra.
Margvísleg ævintýri hafa verið í boði.
mbl.is/Hari