150 sóttu um 30 sumarstörf hjá Vinnslustöðinni

Vinnslustöðinni bárust 150 umsóknir vegna 30 sumarstarfa, en venjan er …
Vinnslustöðinni bárust 150 umsóknir vegna 30 sumarstarfa, en venjan er að erfitt hefur verið að manna allar stöður yfir sumartímann. Ljósmynd/Atli Rúnar Halldórsson

Áður tíðkaðist að nánast allir sem sóttu um sumarstarf hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum fengju vinnu og hefur þurft að sækja mannskap til þess að uppfylla þörf fyrirtækisins. Þessi staða hefur heldur betur breyst og sóttu nú 150 einstaklingar um sumarstarf hjá Vinnslustöðinni, en aðeins 30 voru ráðnir til starfa, segir í svari Lilju Bjargar Arngrímsdóttur, yfirmanns starfsmannamála fyrirtækisins, við fyrirspurn 200 mílna.

Vinnslustöðin auglýsti til umsóknar sumarstörf fyrir páska og rann fresturinn út 27. apríl. „Af reynslu fyrri ára þá var ákveðið að auglýsa eftir umsóknum svo við gætum betur áttað okkur á því hvernig við gætum mannað vinnsluna ef ekki fengjust nægar umsóknir í tíma. Undanfarin ár má segja að allir þeir sem hafi sótt um hafi fengið hjá okkur vinnu,“ segir Lilja Björg.

Færri stöður vegna óvissu

Þá var óskað eftir því að starfsmenn myndu leggja fram sumarleyfisóskir sem hún segir vanalega vera allmargar, en það sé ekki tilfellið í ár og því hafi verið ráðið í færri stöður en undir venjulegum kringumstæðum.

Lilja Björg Arngrímsdóttir, yfirmaður starfsmannamála hjá Vinnslustöðinni.
Lilja Björg Arngrímsdóttir, yfirmaður starfsmannamála hjá Vinnslustöðinni. Ljósmynd/Vinnslustöðin

„Ástandið í heiminum gerir það hins vegar að verkum að fólk getur illa skipulagt sín sumarfrí. […] Við erum með marga starfsmenn sem eru af erlendum uppruna og fara margir til sinna heimalanda hluta úr sumri. Nú horfir hins vegar svo til að þeir hafa ekki tök á að skipuleggja nein ferðalög og því bárust fáar sumarleyfisóskir þegar óskað var eftir þeim,“ útskýrir Lilja Björg. Þá hafi einnig haft áhrif að breyta hafi þurft starfsemi vinnslunnar til þess að aðlaga framleiðsluna að aðstæðum.

„Í ár fengum við yfir 150 starfsumsóknir um sumarvinnu en aðeins voru ráðnir inn um 30 sumarstarfsmenn og voru þeir allir ráðnir á vaktir í uppsjávarvinnsluna. Undanfarin 2-3 ár hafa þetta verið um 40-50 starfsmenn sem við höfum ráðið inn á sumrin og eins og áður segir hafa nær allir fengið vinnu sem sótt hafa um og oft höfum við þurft að sækja mannskap þar sem umsóknir dekkuðu ekki þörfina hjá okkur sérstaklega áður en við tókum nýtt uppsjávarfrystihús í gagnið.“

Stoppa í Grindavík í sumar

Það er ekki einungis í Vestmannaeyjum sem ástandið virðist hafa einhver áhrif á hugsanleg sumarstörf.  „Þetta hefur verið ákveðinn kjarni af skólakrökkum. Við höfum hægt á okkur yfir sumarið undanfarin ár, en við breyttum þessu núna. Við stoppum og það er sameiginleg orlofstaka allan júlímánuð og hálfan ágúst,“ segir Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis í Grindavík.

Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis hf.
Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis hf.

Hann segir óljóst hversu margir starfsmenn muni óska eftir lengra leyfi í júní og ágúst. Mun það meðal annars velta á því hvort starfsmenn af erlendum uppruna munu komast til sinna heimalanda í frí og hvort eitthvað verður um utanlandsferðir íslenskra starfsmanna. „Ég geri ráð fyrir að það verður eitthvað af hefðbundnu skólafólki sem er með okkur í júní og seinnipart ágúst. Það fer eftir því hvað fólkið tekur sér langt aukafrí.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Tryllir GK 600 Grásleppunet
Grásleppa 1.264 kg
Þorskur 164 kg
Skarkoli 115 kg
Rauðmagi 20 kg
Samtals 1.563 kg
25.4.24 Loftur HU 717 Handfæri
Þorskur 408 kg
Karfi 74 kg
Ufsi 35 kg
Samtals 517 kg
25.4.24 Von HU 170 Grásleppunet
Grásleppa 1.092 kg
Skarkoli 590 kg
Þorskur 502 kg
Ýsa 97 kg
Steinbítur 6 kg
Sandkoli 3 kg
Samtals 2.290 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Tryllir GK 600 Grásleppunet
Grásleppa 1.264 kg
Þorskur 164 kg
Skarkoli 115 kg
Rauðmagi 20 kg
Samtals 1.563 kg
25.4.24 Loftur HU 717 Handfæri
Þorskur 408 kg
Karfi 74 kg
Ufsi 35 kg
Samtals 517 kg
25.4.24 Von HU 170 Grásleppunet
Grásleppa 1.092 kg
Skarkoli 590 kg
Þorskur 502 kg
Ýsa 97 kg
Steinbítur 6 kg
Sandkoli 3 kg
Samtals 2.290 kg

Skoða allar landanir »