Óðinn sigldi á ný

Varðskipið Óðinn sigldi út úr Reykjavíkurhöfn í fyrsta skipti í meira en áratug í dag þegar prufað var að ræsa vélar þess að nýju. Sjálfboðaliðar hafa lagt mikla vinnu á sig að undanförnu til að koma skipinu í gang að nýju en Óðinn var fyrst tekinn í notkun fyrir sextíu árum.

Guðmundur Hallvarðsson er formaður Hollvinasamtaka Óðins. Félagsskapurinn náði á sínum tíma að koma í veg fyrir að skipinu yrði fargað en það gegndi lykilhlutverki í þorskastríðunum á sínum tíma og lenti til að mynda tíu sinnum í árekstri við breskar freigátur og dráttarbáta. Meira en þrjátíu sinnum var það notað til að klippa á troll breskra togara þegar Íslendingar börðust fyrir yfirráðum yfir landhelgi sinni. Þá eru ótalin björgunarstörfin sem Óðinn tók þátt í.

Mikil vinna hefur farið fram í vélarrými Óðins á síðastliðnum …
Mikil vinna hefur farið fram í vélarrými Óðins á síðastliðnum fimm árum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Fyrir fimm árum var byrjað á því að standsetja vélar Óðins, sem munu ekki hafa verið ræstar frá árinu 2005. Þá voru tveir vélvirkjar sem unnu að verkinu en síðan hafa fleiri bæst í hópinn og nú hafa 11 manns skipst á um að gera það mögulegt að Óðinn sigli fyrir eigin vélarafli að nýju.

Í myndskeiðinu er rætt við Guðmund og sjá má þegar skipið er dregið út úr höfninni en nauðsynlegt var að ræsa vélarnar þegar út úr höfninni var komið og gekk það vel að sögn Guðmundar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 439,90 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 564,71 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 210,06 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,07 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,24 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,17 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Gammur Ii Grásleppunet
Grásleppa 1.034 kg
Þorskur 320 kg
Samtals 1.354 kg
24.4.24 Hólmi ÞH 56 Grásleppunet
Grásleppa 2.071 kg
Skarkoli 16 kg
Samtals 2.087 kg
24.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 927 kg
Keila 200 kg
Steinbítur 12 kg
Karfi 11 kg
Ýsa 7 kg
Samtals 1.157 kg
24.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Þorskur 192 kg
Grásleppa 61 kg
Steinbítur 18 kg
Skarkoli 5 kg
Samtals 276 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 439,90 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 564,71 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 210,06 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,07 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,24 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,17 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Gammur Ii Grásleppunet
Grásleppa 1.034 kg
Þorskur 320 kg
Samtals 1.354 kg
24.4.24 Hólmi ÞH 56 Grásleppunet
Grásleppa 2.071 kg
Skarkoli 16 kg
Samtals 2.087 kg
24.4.24 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Þorskur 927 kg
Keila 200 kg
Steinbítur 12 kg
Karfi 11 kg
Ýsa 7 kg
Samtals 1.157 kg
24.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Þorskur 192 kg
Grásleppa 61 kg
Steinbítur 18 kg
Skarkoli 5 kg
Samtals 276 kg

Skoða allar landanir »