Á annan tug starfa verða til á Patreksfirði

Skjöldur Pálmason, framkvæmdastjóri Odda hf. á Patreksfirði, segir að „með …
Skjöldur Pálmason, framkvæmdastjóri Odda hf. á Patreksfirði, segir að „með tilkomu laxeldisins hafi skapast mörg tækifæri.“ Ljósmynd/Oddi

Fiskvinnslan Oddi hf. á Patreksfirði hefur ákveðið að hefja vinnslu á laxi sem framleiddur er í nærumhverfi félagsins á Vestfjörðum af Arnarlaxi og Arctic fish, að því er segir í fréttatilkynningu frá Odda. Gert er ráð fyrir að verkefnið skapi 16 til 18 heilsársstörf.

Fram kemur að Oddi hefur fjárfest vinnslulínu frá Marel sem nú er verið að stilla og hefja prófanir fyrir fullunnar laxaafurðir þar sem lögð er áhersla á bestu mögulegu nýtingu á hráefninu.

Telur fyrirtækið að hægt sé að hámarka gæði afurðanna með því að nýta nálægðina við uppeldisstöðvarnar. Samkvæmt áætlunum mun fyrst um sinn vera unnin 2.500 til 3.000 tonn af laxi í vinnslu Odda, en  magn kann að aukast í framtíðinni.

Tækifæri fylgja fiskeldinu

„Þetta er gríðarlega spennandi verkefni en á sama tíma mjög krefjandi þar sem mjög hörð samkeppni er um öflun hágæða laxahráefni eins og Arnarlax og Arctic Fish framleiða. Það er mat okkar í Odda að með tilkomu laxeldisins hafi skapast mörg tækifæri og nú sé rétti tíminn til að hefja vinnslu, þegar slátrun er nánast óslitin alla daga ársins. Stöðugleiki í framboði skiptir öllu fyrir sölumöguleika á ferskum flökum daglega inn á erlenda markaði. Með samningnum er gjaldeyrisöflun þjóðarinnar aukin, sem er ómetanlegt á þessum tímum,“ er haft eftir Skjöld Pálmasyni, framkvæmdastjóra Odda, í tilkynningunni.

Nálægð Patreksfjarðar við eldisstöðvarnar er talin til þess fallin að …
Nálægð Patreksfjarðar við eldisstöðvarnar er talin til þess fallin að tryggja hámarks gæði afurða.
mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 501,21 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 371,38 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 197,72 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 8.181 kg
Þorskur 404 kg
Skarkoli 88 kg
Ýsa 78 kg
Samtals 8.751 kg
18.4.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína
Steinbítur 3.179 kg
Þorskur 460 kg
Skarkoli 160 kg
Ýsa 94 kg
Samtals 3.893 kg
18.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 1.581 kg
Ýsa 18 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.616 kg
18.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 923 kg
Ýsa 369 kg
Þorskur 199 kg
Hlýri 78 kg
Skarkoli 56 kg
Langa 25 kg
Ufsi 18 kg
Samtals 1.668 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 501,21 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 371,38 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 197,72 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 8.181 kg
Þorskur 404 kg
Skarkoli 88 kg
Ýsa 78 kg
Samtals 8.751 kg
18.4.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína
Steinbítur 3.179 kg
Þorskur 460 kg
Skarkoli 160 kg
Ýsa 94 kg
Samtals 3.893 kg
18.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 1.581 kg
Ýsa 18 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.616 kg
18.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 923 kg
Ýsa 369 kg
Þorskur 199 kg
Hlýri 78 kg
Skarkoli 56 kg
Langa 25 kg
Ufsi 18 kg
Samtals 1.668 kg

Skoða allar landanir »