Rekstrartekjur Brims hf. á fyrsta ársfjórðungi námu 74,4 milljónum evra, en þær hækkuðu um 16,4 milljónir evra samanborið við sama tímabil í fyrra. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir var 7,7 milljónir evra, samanborið við 9,7 milljónir evra á sama tíma árið áður. Hagnaður félagsins var 0,4 milljónir evra, en var 3,9 milljónir evra á fyrsta fjórðungi síðasta árs.
Hagnaðurinn er um 64 milljónir króna á gengi dagsins í dag en ef miðað er við lokagengi ársfjórðungsins var hagnaðurinn um 62 milljónir króna.
Í tilkynningu frá félaginu til Kauphallarinnar er haft eftir Kristjáni Þ. Davíðssyni, stjórnarformanni félagsins, að afkoman markist nokkuð af erfiðu tíðarfari. Nefnir hann nokkuð lakari afla og þar með afkomu, einkum í veiðum og vinnslu uppsjávarafla. Þá valdi loðnubrestur annað árið í röð nokkru um afkomu. Félagið njóti hins vegar góðs af fjárfestingum undanfarinna missera, bæði í Ögurvík og sölufélögum í Asíu.
„Þrátt fyrir að verð sjávarafurða hafi almennt verið tiltölulega góð í upphafi árs eru horfur á mörkuðum óvissar vegna áhrifa heimsfaraldursins á neyslumynstur, sölu og flutninga,“ er haft eftir Kristjáni.
Heildareignir félagsins námu í lok fjórðungsins 704,2 milljónum evra, en þar af voru fastafjármunir 553,9 milljónir evra og veltufjármunir 150,3 milljónir evra. Eigið fé nam 306,4 milljónum evra og var eiginfjárhlutfallið 45,3%. Heildarskuldir félagsins voru 397,8 milljónir í lok mars.
Handbært fé frá rekstri Brims nam 21,3 milljónum evra en var á sama tíma í fyrra 22,2 milljónir evra. Fjárfestingarhreyfingar voru neikvæðar um 7,1 milljón evrur.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 24.4.24 | 436,69 kr/kg |
Þorskur, slægður | 24.4.24 | 566,23 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 24.4.24 | 213,60 kr/kg |
Ýsa, slægð | 24.4.24 | 118,02 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 24.4.24 | 168,00 kr/kg |
Ufsi, slægður | 24.4.24 | 205,91 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 24.4.24 | 228,36 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 6,89 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 16.635 kg |
Ýsa | 451 kg |
Steinbítur | 211 kg |
Ufsi | 34 kg |
Hlýri | 26 kg |
Keila | 14 kg |
Karfi | 4 kg |
Langa | 3 kg |
Samtals | 17.378 kg |
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína | |
---|---|
Þorskur | 1.843 kg |
Steinbítur | 344 kg |
Keila | 55 kg |
Ýsa | 54 kg |
Ufsi | 35 kg |
Karfi | 16 kg |
Hlýri | 4 kg |
Langa | 2 kg |
Samtals | 2.353 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 24.4.24 | 436,69 kr/kg |
Þorskur, slægður | 24.4.24 | 566,23 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 24.4.24 | 213,60 kr/kg |
Ýsa, slægð | 24.4.24 | 118,02 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 24.4.24 | 168,00 kr/kg |
Ufsi, slægður | 24.4.24 | 205,91 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 24.4.24 | 228,36 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 6,89 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 16.635 kg |
Ýsa | 451 kg |
Steinbítur | 211 kg |
Ufsi | 34 kg |
Hlýri | 26 kg |
Keila | 14 kg |
Karfi | 4 kg |
Langa | 3 kg |
Samtals | 17.378 kg |
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína | |
---|---|
Þorskur | 1.843 kg |
Steinbítur | 344 kg |
Keila | 55 kg |
Ýsa | 54 kg |
Ufsi | 35 kg |
Karfi | 16 kg |
Hlýri | 4 kg |
Langa | 2 kg |
Samtals | 2.353 kg |