Kemba sama svæðið aftur og aftur

Frá leitinni í gær.
Frá leitinni í gær. Ljósmynd/Jón Helgason

Leit að skipverja sem talið er að hafi fallið fyrir borð af fiskiskipinu Erling KE-140 í Vopnafirði stendur enn yfir. Mannsins hefur verið leitað síðan á mánudag. 

Erling KE-140 er í eigu Saltvers en Brim er með skipið á leigu. Um er að ræða netabát sem var á grálúðuveiðum, þegar maðurinn féll fyrir borð um klukkan tvö á mánudag. 

Jón Sigurðsson, formaður björgunarsveitarinnar Vopna, segir að leitin í dag hafi verið nokkuð umfangsminni en síðustu daga. Alls séu um 15 manns við leit sem stendur. 

„Björgunarsveitin Vopni heldur áfram leit í dag og á morgun í það minnsta. Síðan reiknum við með að bæta í um helgina. Leitin í gær gekk mjög vel. Það er bara alltaf sami útgangspunkturinn hjá okkur, hann afmarkar leitarsvæðið okkar.“

Jón segir að leitarsvæðið sé enn það sama. 

„Það er bara farið yfir svæðin aftur og aftur. Svæðið sem slíkt var leitað alveg í þaula í gær, með gríðarlegum mannskap. Til að útiloka að hann væri kominn upp í fjöru einhvers staðar. Við leitum í minni hópum núna og bætum síðan í að nýju um helgina, sama svæði aftur og aftur.“

Jón segir að bátar og sæþotur séu notaðar við leitina ásamt því að fjörur eru gengnar. Þá segir hann leitaraðstæður hafa versnað síðan í gær. 

„Það er mikið verra í dag en í gær. Það er hvöss austanátt, svo það brýtur hérna á hafnargarðinum á okkur núna. Dagurinn í gær var fullkomlega nýttur í góða veðrinu og svo á veðrið að skána á morgun.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Ufsi 1.297 kg
Skarkoli 1.198 kg
Karfi 226 kg
Ýsa 210 kg
Langa 136 kg
Þykkvalúra 79 kg
Þorskur 74 kg
Sandkoli 16 kg
Steinbítur 13 kg
Skötuselur 8 kg
Samtals 3.257 kg
23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 3.980 kg
Skarkoli 1.183 kg
Þorskur 328 kg
Sandkoli 195 kg
Ýsa 82 kg
Samtals 5.768 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Ufsi 1.297 kg
Skarkoli 1.198 kg
Karfi 226 kg
Ýsa 210 kg
Langa 136 kg
Þykkvalúra 79 kg
Þorskur 74 kg
Sandkoli 16 kg
Steinbítur 13 kg
Skötuselur 8 kg
Samtals 3.257 kg
23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 3.980 kg
Skarkoli 1.183 kg
Þorskur 328 kg
Sandkoli 195 kg
Ýsa 82 kg
Samtals 5.768 kg

Skoða allar landanir »