Kaldaskítur á miðunum síðustu daga

Beitir NK er eitt þeirra skipa sem eru á kolmunnaveiðum. …
Beitir NK er eitt þeirra skipa sem eru á kolmunnaveiðum. Kaldaskítur og jafnvel bræla hefur verið á miðunum síðustu daga, að sögn Sigurðar Valgeirs Jóhannessonar, stýrimanns á Beiti. Ljósmynd/Helgi Freyr Ólason

Kolmunnaveiðin við Færeyjar er orðin arfaslök, segir á vef Síldarvinnslunnar. Fram kemur að kolmunnaskipin eru að tilkynna 100 til 200 tonn á sólarhring. Lengi er dregið við þessar aðstæður, eða í um 20 tíma. Þá tekur tvo til þrjá tíma að hífa, dæla og kasta á ný og er því einungis tekið eitt hol á sólarhring.

Haft er eftir Sigurði Valgeiri Jóhannessyni, stýrimanni á Beiti, að það hefur verið „kaldaskítur og jafnvel bræla á miðunum síðustu daga“. Kolmunnaflotinn er staddur austur af Færeyjum nálægt miðlínunni á milli Færeyja og Hjaltlandseyja. Síldarvinnsluskipin, Beitir NK, Börkur NK og Bjarni Ólafsson AK, eru þar öll og toga á sama svæði.

Bent er á að á síðustu árum hefur dregið úr kolmunnaveiðinni þegar líður á maímánuð rétt eins og nú. Hins vegar er staðan önnur þar sem síldarvinnsluskipin eiga eftir að veiða um 30.000 tonn en á svipuðum tíma í fyrra áttu þau eftir að veiða um 20.000 tonn. „Helsta ástæðan fyrir minni veiði í ár en í fyrra er óhagstætt veður á miðunum vestur af Írlandi í febrúar og mars.“

Gert er ráð fyrir að Hákon EA komi til Neskaupstaðar í fyrramálið með 1.700 tonn af kolmunna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 496,08 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 362,62 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 196,14 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Guðmundur Arnar EA 102 Grásleppunet
Grásleppa 811 kg
Þorskur 429 kg
Skarkoli 36 kg
Steinbítur 15 kg
Samtals 1.291 kg
19.4.24 Björn Hólmsteinsson ÞH 164 Grásleppunet
Grásleppa 1.840 kg
Þorskur 148 kg
Skarkoli 15 kg
Steinbítur 5 kg
Samtals 2.008 kg
19.4.24 Bobby 4 ÍS 364 Sjóstöng
Þorskur 126 kg
Samtals 126 kg
19.4.24 Bobby 6 ÍS 366 Sjóstöng
Þorskur 213 kg
Samtals 213 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 496,08 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 362,62 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 196,14 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Guðmundur Arnar EA 102 Grásleppunet
Grásleppa 811 kg
Þorskur 429 kg
Skarkoli 36 kg
Steinbítur 15 kg
Samtals 1.291 kg
19.4.24 Björn Hólmsteinsson ÞH 164 Grásleppunet
Grásleppa 1.840 kg
Þorskur 148 kg
Skarkoli 15 kg
Steinbítur 5 kg
Samtals 2.008 kg
19.4.24 Bobby 4 ÍS 364 Sjóstöng
Þorskur 126 kg
Samtals 126 kg
19.4.24 Bobby 6 ÍS 366 Sjóstöng
Þorskur 213 kg
Samtals 213 kg

Skoða allar landanir »