Brim gerist aðalstyrktaraðili Bláa hersins

Tómas J. Knútsson, stofnandi Bláa hersins, Kristján Davíðsson, stjórnarformaður Brims, …
Tómas J. Knútsson, stofnandi Bláa hersins, Kristján Davíðsson, stjórnarformaður Brims, með styrktar- og samstarfssamningin. Hann felur í sér að Brim verður aðalstyrkytaraðili samtakanna. Ljósmynd/Brim

Brim hf. hefur gerst aðalstyrktaraðili umhverfissamtakanna Bláa hersins og mun fyrirtækið styðja rekstur samtakanna með fjárframlögum og með faglegri aðkomu að kynningu og markaðsstarfi í þeim tilgangi að auka sýnileika umhverfissamtakanna, að því er fram kemur í færslu á vef Brims.

Þá hyggst fyrirtækið einnig taka beinan þátt í verkefnum Bláa hersins með eigin hreinsunardegi að minnsta kosti einu sinni að ári þar sem fjörur verða gengnar og hreinsaðar.

Blái herinn hefur starfað í 25 ár og leggur áherslu á baráttuna við plastmengun í hafinu með hreinsunarstörfum við strendur landsins og með hvatningu og vitundarvakningu. Samtökin hafa frá stofnun hreinsað yfir 1.540 tonn af rusli úr fjörum landsins.

„Virðing fyrir umhverfinu og lífríki sjávar er grundvöllur starfsemi Brims og lögð er áhersla á góða umgengni um auðlindina og ábyrgar fiskveiðar svo komandi kynslóðir geti notið hennar áfram,“ segir í færslunni.

„Blái herinn undir forystu Tómasar J. Knútssonar hefur unnið frábært starf í aldarfjórðung við að hreinsa fjörur af plasti og ekki síður með því að vekja athygli á mengun í hafinu. Brim leggur mikla áherslu á sjálfbærni og umhverfismál í sínu starfi og vill sýna í verki hvernig skilningur og virðing fyrir samfélagi og umhverfi fer saman við ábyrgan og arðsaman rekstur félagsins. Það fer því vel á að Brim gangi til liðs við Bláa herinn í baráttunni við plastmengun í hafinu,“ er haft eftir Kristjáni Davíðssyni, stjórnarformanni Brims.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Ufsi 1.297 kg
Skarkoli 1.198 kg
Karfi 226 kg
Ýsa 210 kg
Langa 136 kg
Þykkvalúra 79 kg
Þorskur 74 kg
Sandkoli 16 kg
Steinbítur 13 kg
Skötuselur 8 kg
Samtals 3.257 kg
23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 3.980 kg
Skarkoli 1.183 kg
Þorskur 328 kg
Sandkoli 195 kg
Ýsa 82 kg
Samtals 5.768 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 23.4.24 456,31 kr/kg
Þorskur, slægður 23.4.24 532,04 kr/kg
Ýsa, óslægð 23.4.24 237,18 kr/kg
Ýsa, slægð 23.4.24 143,44 kr/kg
Ufsi, óslægður 23.4.24 177,69 kr/kg
Ufsi, slægður 23.4.24 227,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 23.4.24 177,61 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

23.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Ufsi 1.297 kg
Skarkoli 1.198 kg
Karfi 226 kg
Ýsa 210 kg
Langa 136 kg
Þykkvalúra 79 kg
Þorskur 74 kg
Sandkoli 16 kg
Steinbítur 13 kg
Skötuselur 8 kg
Samtals 3.257 kg
23.4.24 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 3.980 kg
Skarkoli 1.183 kg
Þorskur 328 kg
Sandkoli 195 kg
Ýsa 82 kg
Samtals 5.768 kg

Skoða allar landanir »