Hafró leiðréttir ráðgjöf vegna sullprósentu

Tekist hefur verið á um hvernig hafi verið staðið að …
Tekist hefur verið á um hvernig hafi verið staðið að grásleppuvertíðinni af hálfu stjórnvalda. Útgefin ráðgjöf hefur nú verið leiðrétt. mbl.is/Hafþor Hreiðarsson

Tilhögun grásleppuvertíðarinnar í ár og ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar hefur sætt mikilli gagnrýni og virðist stofnunin í dag, með nýrri greiningu og leiðréttri ráðgjöf, hafa gefið eftir í deilunni. Áður hafði stofnunin vísað allri gagnrýni á bug.

Hafrannsóknastofnun hefur endurskoðað útgefna ráðgjöf vegna grásleppuveiða fyrir fiskveiðiárið 2019/2020 og ráðleggur nú 5.200 tonn í stað þeirra 4.646 tonna sem ráðlagt var áður. Munar því 12% á fyrri og seinni ráðgjöf og er um að ræða leiðréttingu vegna þriggja atriða, upplýsir stofnunin á vef sínum.

Í greiningunni segir að í fyrri greiningu stofnunarinnar hafi verið gerð tvenn mistök. Annars vegar hafi prentvilla í skriftu leitt til „rangrar hreinsunar sem hafði áhrif á hlutfallstölu eins verkunarstigs“ og hins vegar leiddu mistök „í hreinsun til þess að hrognamagn í tunnur nokkurra báta var vanmetið“.

Með þessu er Hafrannsóknastofnun að vísa til þeirrar aðferðarfræði sem beitt er þegar sögulegum tölum um framleiðslumagn er umreiknað til þess að kortleggja veiðar fyrri ára, 1985 til 2008, en þá var aflaskráning ekki viðhöfð með sama hætti og í dag.

Lögðu sull á hrognin

Þá segir Hafrannsóknastofnun frá því að auk hinna tveggja mistaka, sem sagt hefur verið frá, var 20% „sullprósenta“ sem Fiskistofa dregur frá hrognamagni við skráningu í gagnagrunn, lögð aftur ofan á landanir hrogna fyrir árin 2008 til 2016.

„Samanlagt leiddi þetta til þess að meðalvísitala veiðihlutfalls sem miðað er við í ráðgjafarreglu hækkaði úr 0,67 í 0,75, eða aftur í fyrra horf ráðgjafarreglu sem stuðst hefur verið við árin 2012-2019. Miðað við þessar nýju forsendur hefur Hafrannsóknastofnun hækkað ráðlagðan heildarafla á grásleppuvertíðinni 2020 úr 4.646 í 5.200 tonn, og fyrir vertíðina 2021 hækkar upphafsráðgjöf úr 1.459 í 1.634 tonn,“ útskýrir stofnunin.

Bent er á að heildarafli vertíðarinnar er kominn í 5.035 tonn samkvæmt upplýsingum frá Fiskistofu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 496,08 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 362,62 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 196,14 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Sindri BA 24 Grásleppunet
Grásleppa 608 kg
Þorskur 16 kg
Skarkoli 9 kg
Samtals 633 kg
19.4.24 Ósk ÞH 54 Grásleppunet
Grásleppa 858 kg
Þorskur 60 kg
Skarkoli 19 kg
Ufsi 2 kg
Samtals 939 kg
19.4.24 Jón Bjarni BA 50 Grásleppunet
Grásleppa 368 kg
Steinbítur 30 kg
Þorskur 11 kg
Rauðmagi 7 kg
Skarkoli 1 kg
Samtals 417 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 496,08 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 362,62 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 196,14 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Sindri BA 24 Grásleppunet
Grásleppa 608 kg
Þorskur 16 kg
Skarkoli 9 kg
Samtals 633 kg
19.4.24 Ósk ÞH 54 Grásleppunet
Grásleppa 858 kg
Þorskur 60 kg
Skarkoli 19 kg
Ufsi 2 kg
Samtals 939 kg
19.4.24 Jón Bjarni BA 50 Grásleppunet
Grásleppa 368 kg
Steinbítur 30 kg
Þorskur 11 kg
Rauðmagi 7 kg
Skarkoli 1 kg
Samtals 417 kg

Skoða allar landanir »