Enn er stefnt að því að halda alþjóðlegu sjávarútvegssýninguna Icefish í Fífunni í Kópavogi í september, að því er segir í tilkynningu á vef hennar. Þá sé Mercator Media, sem heldur sýninguna, staðráðið í að gera viðburðinn að veruleika að því marki sem hægt er að gera það með öruggum hætti.
Íslensk stjórnvöld hafa gefið út að samkomumörk verði hækkuð í 2.000 í sumar en sýningin, sem haldin er þriðja hvert ár, hefur tekið við fleiri þúsund gestum og voru þeir 13.621 árið 2017.
„Við gerum okkur grein fyrir því að með reglulegum fréttaflutningi og nýjum upplýsingum kunni sýnendur okkar og gestir að hafa margar spurningar varðandi sýninguna í ár,“ segir í tilkynningunni.
„Í ljósi þessarar óvissu sem stafar af COVID-19 vinnur Mercator Media Limited áfram að því að undirbúa Íslensku sjávarútvegssýninguna (Icefish) sem haldin verður dagana 23.-25. september og fær ráðgjöf um til hvaða ráðstafana þarf að grípa til þess að halda þennan viðburð með öruggum hætti sem skilar árangri. Við vitum að flugferðir til Íslands hefjast á ný 15. júní og að íslensk stjórnvöld gera ráð fyrir því að samkomutakmörk verði hækkuð upp í 2.000 manns nú í sumar.“
Þá hyggst Mercator Media fylgjast með þróun mála og gefa út nýtt mat á stöðunni 1. júlí. „Eins og ávallt látum við okkur mestu varða heilbrigði og öryggi sýnenda okkar, gesta og starfsfólks. Treysta má því að Mercator Media Limited sýni fyllstu aðgætni og fari að ráðleggingum alþjóðlegra heilbrigðisyfirvalda eins og Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni og yfirvöldum á hverjum stað.“
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 25.4.24 | 425,86 kr/kg |
Þorskur, slægður | 25.4.24 | 527,13 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 25.4.24 | 191,99 kr/kg |
Ýsa, slægð | 25.4.24 | 150,72 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 25.4.24 | 122,07 kr/kg |
Ufsi, slægður | 25.4.24 | 172,26 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 25.4.24 | 162,06 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 3.357 kg |
Þorskur | 383 kg |
Ýsa | 23 kg |
Samtals | 3.763 kg |
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 3.836 kg |
Samtals | 3.836 kg |
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.853 kg |
Þorskur | 296 kg |
Skarkoli | 100 kg |
Samtals | 2.249 kg |
25.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót | |
---|---|
Skarkoli | 1.853 kg |
Þorskur | 271 kg |
Sandkoli | 102 kg |
Ýsa | 8 kg |
Samtals | 2.234 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 25.4.24 | 425,86 kr/kg |
Þorskur, slægður | 25.4.24 | 527,13 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 25.4.24 | 191,99 kr/kg |
Ýsa, slægð | 25.4.24 | 150,72 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 25.4.24 | 122,07 kr/kg |
Ufsi, slægður | 25.4.24 | 172,26 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 25.4.24 | 162,06 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 7,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 3.357 kg |
Þorskur | 383 kg |
Ýsa | 23 kg |
Samtals | 3.763 kg |
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 3.836 kg |
Samtals | 3.836 kg |
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.853 kg |
Þorskur | 296 kg |
Skarkoli | 100 kg |
Samtals | 2.249 kg |
25.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót | |
---|---|
Skarkoli | 1.853 kg |
Þorskur | 271 kg |
Sandkoli | 102 kg |
Ýsa | 8 kg |
Samtals | 2.234 kg |