Kórónuveira á skurðbrettum heildsala

Engan lax er að finna í flestum verslunum í Peking …
Engan lax er að finna í flestum verslunum í Peking í kjölfar þess að kórónuveira uppgötvaðist á skurðbrettum heildsala í borginni. AFP

Stórar dagvöruverslanir í Peking höfuðborg Kína, þar á meðal Carrefour og Wumart, hafa stöðvað sölu á laxi í kjölfar þess að uppgötvaðist kórónuveira á skurðbrettum heildsala í borginni og skapaðist ótti um að smit gæti borist með afurðum sem unnar hafa verið á umræddum skurðbrettum, þrátt fyrir að veirufræðingar hafi sagt að veiran geti ekki borist í menn úr fiski, að því er fram kemur í umfjöllun kínversku fréttaveitunnar Global Times.

Þar segir að blaðamenn Global Times hafi komið við í verslunum borgarinnar síðastliðinn laugardag og að þeir hafi hvergi fundið lax til sölu og að á mörgum stöðum hafði fiskborðum verið lokað.

Þá hafi lax verið til sölu hjá versluninni Walmart en að starfsmenn kínverska matvælaeftirlitssins í Shijingshan-héraði hafi mætt til þess að skrá lax og kjötvörur sem þar voru til sölu.

„Ég var ný búin að borða lax á sushistað,“ er haft eftir Fan Jingli, íbúa í Peking. Hún kvaðst ætla að fara í sýnatöku til þess að útiloka að hún hafi smitast af kórónuveirunni. Fram kemur að margir sushi-veitingastaðir í borginni hafi fjarlægt lax af matseðli sínum.

Kína flytur inn um það bil 80 þúsund tonn af frosnum og kældum laxi á ári hverju og vex magnið ár frá ári. Megnið af laxafurðum í Kína eru flutt inn frá Síle, Noregi, Færeyjum, Ástralíu og Kanada.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 423,65 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 526,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 192,17 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,81 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 117,04 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,65 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 232,75 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Kaja ÞH 66 Grásleppunet
Grásleppa 1.269 kg
Þorskur 51 kg
Skarkoli 10 kg
Samtals 1.330 kg
25.4.24 Kvikur EA 20 Grásleppunet
Grásleppa 998 kg
Þorskur 177 kg
Samtals 1.175 kg
25.4.24 Bobby 4 ÍS 364 Sjóstöng
Þorskur 182 kg
Samtals 182 kg
25.4.24 Bobby 13 ÍS 373 Sjóstöng
Þorskur 137 kg
Samtals 137 kg
25.4.24 Bobby 3 ÍS 363 Sjóstöng
Þorskur 60 kg
Samtals 60 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 423,65 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 526,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 192,17 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,81 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 117,04 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,65 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 232,75 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Kaja ÞH 66 Grásleppunet
Grásleppa 1.269 kg
Þorskur 51 kg
Skarkoli 10 kg
Samtals 1.330 kg
25.4.24 Kvikur EA 20 Grásleppunet
Grásleppa 998 kg
Þorskur 177 kg
Samtals 1.175 kg
25.4.24 Bobby 4 ÍS 364 Sjóstöng
Þorskur 182 kg
Samtals 182 kg
25.4.24 Bobby 13 ÍS 373 Sjóstöng
Þorskur 137 kg
Samtals 137 kg
25.4.24 Bobby 3 ÍS 363 Sjóstöng
Þorskur 60 kg
Samtals 60 kg

Skoða allar landanir »