Leggja niður störf og sigla skipinu heim

Samstaða sjómannanna á Berglínu var algjör, að sögn Inga, sem …
Samstaða sjómannanna á Berglínu var algjör, að sögn Inga, sem er stoltur af því að vera partur af áhöfninni. Ljósmynd/Aðsend

Áhöfn Berglínar GK 300 lagði niður störf í dag á hafi úti og ákváðu sjómennirnir að sigla heim vegna meintrar 35% launalækkunar sem þeir segjast ekki ætla að láta yfir sig ganga. Um er að ræða ístogara á vegum útgerðarinnar Nesfisks og kannast fleiri sjómenn útgerðarinnar en þeir á Berglín við kjaraskerðingu. Var sjómönnunum greitt frá 35% og upp í 46% minna fyrir maímánuð en samningar á milli útgerðar og áhafnar segja til um, að sögn sjómanns Nesfisks sem mbl.is ræddi við. 

„Við vorum sviknir um samninga og laun okkar lækkuð um 35% án samtals þannig að við settum hnefann í borðið og sögðum hingað og ekki lengra, við gáfum útgerðinni möguleika á því að gera hreint fyrir sínum dyrum og þá fyrst skyldum við halda til veiða. Þeir tóku ekki þann möguleika þannig að við erum að sigla skipinu heim og förum ekki til veiða aftur þangað til að spilað verður eftir reglum aftur“, skrifar Ingi Þór Hafdísarson í færslu á Facebook en hann er stýrimaður á Berglín sem siglir nú til hafnar.

Ekkert samráð var haft við sjómennina áður en laun þeirra voru lækkuð í maímánuði og segir annar sjómaður sem vill ekki koma fram undir nafni að um „hreint og klárt lögbrot“ sé að ræða. Þrátt fyrir að laun fleiri sjómanna en þeirra á Berglín hafi verið lækkuð, að sögn sjómannannsins, hafa fleiri áhafnir Nesfisks ekki tekið ákvörðun um að leggja niður störf.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 426,31 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 192,19 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 120,59 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,14 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Kolga BA 70 Grásleppunet
Rauðmagi 29 kg
Þorskur 21 kg
Samtals 50 kg
25.4.24 Guðborg NS 336 Grásleppunet
Grásleppa 1.443 kg
Þorskur 473 kg
Ýsa 113 kg
Skarkoli 60 kg
Samtals 2.089 kg
25.4.24 Guðrún AK 9 Grásleppunet
Grásleppa 671 kg
Samtals 671 kg
25.4.24 Sæfari BA 110 Grásleppunet
Grásleppa 3.470 kg
Þorskur 109 kg
Skarkoli 63 kg
Steinbítur 29 kg
Rauðmagi 20 kg
Samtals 3.691 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 426,31 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 192,19 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 120,59 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,14 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Kolga BA 70 Grásleppunet
Rauðmagi 29 kg
Þorskur 21 kg
Samtals 50 kg
25.4.24 Guðborg NS 336 Grásleppunet
Grásleppa 1.443 kg
Þorskur 473 kg
Ýsa 113 kg
Skarkoli 60 kg
Samtals 2.089 kg
25.4.24 Guðrún AK 9 Grásleppunet
Grásleppa 671 kg
Samtals 671 kg
25.4.24 Sæfari BA 110 Grásleppunet
Grásleppa 3.470 kg
Þorskur 109 kg
Skarkoli 63 kg
Steinbítur 29 kg
Rauðmagi 20 kg
Samtals 3.691 kg

Skoða allar landanir »