Aquitaine D650, freigáta franska flotans, lét úr höfn á Akureyri fyrir hádegi í dag, en skipið hefur verið þar frá 18. júní. Tilefni komu skipsins var kurteisisheimsókn sem hefur staðið til í þó nokkurn tíma, að því er fram kemur í svari Landhelgisgæslunnar við fyrirspurn 200 mílna. Þá mun áhöfn skipsins ekki hafa farið frá borði á þessum tíma, í samræmi við reglur franska flotans.
Orrustuskipið Aquitaine er öflugt herskip og jafnframt það fyrsta sinnar tegundar. Tegundin ber heiti skipsins, Aquitaine, og var þróað sem samstarfsverkefni franska og ítalska flotans (FREMM), en tilgangurinn var að þróa nýja tegund alhliða orrustuskipa til notkunar í Evrópu. Smíði skipsins hófst 2007 og lauk 2012.
Aquitaine er 142 metrar að lengd og 19,8 metrar að breidd. Þá er skipið búið ýmsum vopnum, svo sem 76 millimetra byssu sem nota má gegn flugvélum og skipum, þremur 20 millimetra fallbyssum, 16 Aster 15 eldflaugum ætluðum gegn loftförum, 16 SCALP-eldflaugum til þess að nota gegn skotmörkum á sjó og á landi, 8 Exocet-gagnskipaeldflaugum og tundurskeytum.
Aquitaine var eitt þeirra skipa sem tóku þátt í aðgerðum gegn Sýrlandsher í apríl 2018 og á sér sjö systurskip í franska flotanum sem öll bera nöfn franskra héraða; Normandie, Provence, Languedoc, Auvergne, Alsace, Bretagne og Lorraine. Einnig er eitt skip af Aquitaine-tegundinni í sjóher Egyptalands, Tahya Misr, og eitt í sjóher Marokkó, Mohammed VI.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 27.3.24 | 401,44 kr/kg |
Þorskur, slægður | 27.3.24 | 443,15 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 27.3.24 | 183,92 kr/kg |
Ýsa, slægð | 27.3.24 | 136,03 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 27.3.24 | 107,02 kr/kg |
Ufsi, slægður | 27.3.24 | 189,28 kr/kg |
Gullkarfi | 27.3.24 | 143,21 kr/kg |
Litli karfi | 27.3.24 | 8,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 27.3.24 | 120,00 kr/kg |
28.3.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.961 kg |
Þorskur | 217 kg |
Samtals | 3.178 kg |
28.3.24 Helga Sæm ÞH 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 4.013 kg |
Samtals | 4.013 kg |
28.3.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 898 kg |
Þorskur | 92 kg |
Skarkoli | 13 kg |
Samtals | 1.003 kg |
28.3.24 Fengur EA 207 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.217 kg |
Þorskur | 104 kg |
Skarkoli | 14 kg |
Rauðmagi | 4 kg |
Samtals | 1.339 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 27.3.24 | 401,44 kr/kg |
Þorskur, slægður | 27.3.24 | 443,15 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 27.3.24 | 183,92 kr/kg |
Ýsa, slægð | 27.3.24 | 136,03 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 27.3.24 | 107,02 kr/kg |
Ufsi, slægður | 27.3.24 | 189,28 kr/kg |
Gullkarfi | 27.3.24 | 143,21 kr/kg |
Litli karfi | 27.3.24 | 8,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 27.3.24 | 120,00 kr/kg |
28.3.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.961 kg |
Þorskur | 217 kg |
Samtals | 3.178 kg |
28.3.24 Helga Sæm ÞH 70 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 4.013 kg |
Samtals | 4.013 kg |
28.3.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 898 kg |
Þorskur | 92 kg |
Skarkoli | 13 kg |
Samtals | 1.003 kg |
28.3.24 Fengur EA 207 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.217 kg |
Þorskur | 104 kg |
Skarkoli | 14 kg |
Rauðmagi | 4 kg |
Samtals | 1.339 kg |