„Við finnum fyrir alveg gríðarlegum meðbyr frá ólíkum stöðum. Við erum með þessu að skapa alveg einstakt umhverfi fyrir frumkvöðla í nýsköpun. Fram til þessa hefur vantað staðsetningu og aðstöðu en með þessu stendur slíkt til boða,“ segir Valdís Fjölnisdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Brim.
Frá kynningu verkefnisins.
Vísar hún í máli sínu til stofnunar þróunarfélags um atvinnuuppbyggingu og nýsköpun á Breið á Akranesi. Er verkefnið samvinnuverkefni Akraneskaupstaðar og Brims, en unnið hefur verið að undirbúningi frá því síðastliðið haust og hefur KPMG ráðgjöf leitt vinnuna með þátttöku íbúa og ýmissa hagaðila.
Fjöldi starfa getur skapast
Markmiðið verkefnisins er að efla atvinnutækifæri, nýsköpun og skapandi greinar á svæðinu, auk þess sem gert er ráð fyrir nýrri íbúðabyggð á Breið. Að sögn Sævars Freys Þráinssonar, bæjarstjóra Akraneskaupstaðar er verkefnið gríðarlega spennandi. Með verkefninu geti jafnframt skapast fjöldi starfa.
Byggt verður upp rannsóknar- og nýsköpunarsetur, aðstaða sem mun standa frumkvöðlum til boða að nýta. Þá verður sömuleiðis komið upp samvinnurými. Nokkur fjöldi stofnana og fyrirtækja kemur að verkefninu, þar á meðal Álklasinn, Skaginn 3X og Háskóli Íslands.
Getur skilað einhverju stórfenglegu
„Þetta eru í það heila 17 aðilar sem ætla að stuðla að uppbyggingu hér á svæðinu. Hún mun m.a. fara fram í hinu mikla húsi sem HB Grandi hafði áður nýtt undir starfsemi sína. Þarna verður ólíkum aðilum gefinn kostur á að koma að rannsóknum og nýsköpun,“ segir Sævar sem kveðst bjartsýnn.
„Það er ómögulegt að segja hversu hratt þetta gerist eða hversu mörg störf skapast í kringum þetta. Þróunin getur fært okkur í ýmsar áttir. Við erum að leggja af stað með stóran draum sem getur skilað okkur einhverju mögnuðu horft til framtíðar. Með trú að vopni getum við náð ansi langt,“ segir Sævar.