„Ég sem bara fyrir mitt fólk,“ segir Kolbeinn Agnarsson, formaður sjómannafélagsins Jötuns í Vestmannaeyjum, í samtali við 200 mílur. Hann segir eina markmið félagsins með samningi við Herjólf ohf. hafi verið að semja fyrir sína félagsmenn.
Deila um hvort kjarasamningurinn gildi fyrir starfsmenn Herjólfs sem eru í Sjómannafélagi Íslands hefur leitt til þess að vinnustöðvanir hafa verið boðaðar, en flestir starfsmenn eru í félaginu.
Jónas Garðarsson, formaður samninganefndar Sjómannafélags Íslands, fullyrti í gær að ekki var kosið um kjarasamning sem Jötunn gerði við Herjólf og forsvarsmenn Herjólfs telja að gildi fyrir félagsmenn Sjómannafélags Íslands. Jafnframt hélt hann því fram að samningurinn væri falin í skúffu.
Þessu vísar Kolbeinn á bug. „Við sömdum við Herjólf fyrir Jötunn. Hvorki ég né aðrir hafa samningsumboð fyrir einhver önnur félög.“ Samningurinn var því borinn undir félagsmenn Jötuns að sögn Kolbeins. Jafnframt hefur verið haft eftir hann á Eyjar.net að engin leynd sé yfir samningnum sem er öllum aðilum aðgengilegur á skrifstofu félagsins.
Kolbeinn útskýrir að Jötunn hafi á sínum tíma farið á leit við Herjólf um að semja fyrir sína félagsmenn og var gengið frá samningi í febrúar. „Við erum bara stéttarfélag að sinna okkar fólki. Síðan tekur Herjólfur ákvörðun um að setja alla starfsmenn á þennan samning sem var gerður við okkur.“
Það sé því ljóst að Jötunn sé ekki aðili að deilunni að mati Kolbeins sem kveðst ekki ætla að hafa frekari aðkomu að henni.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 27.3.24 | 401,29 kr/kg |
Þorskur, slægður | 27.3.24 | 443,15 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 27.3.24 | 182,08 kr/kg |
Ýsa, slægð | 27.3.24 | 136,03 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 27.3.24 | 107,02 kr/kg |
Ufsi, slægður | 27.3.24 | 189,28 kr/kg |
Gullkarfi | 27.3.24 | 143,21 kr/kg |
Litli karfi | 27.3.24 | 8,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 27.3.24 | 120,00 kr/kg |
28.3.24 Kaldbakur EA 1 Botnvarpa | |
---|---|
Karfi | 91.675 kg |
Ufsi | 10.767 kg |
Þorskur | 692 kg |
Langa | 300 kg |
Samtals | 103.434 kg |
27.3.24 Herdís SH 173 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 708 kg |
Samtals | 708 kg |
27.3.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína | |
---|---|
Steinbítur | 10.108 kg |
Þorskur | 718 kg |
Ýsa | 71 kg |
Samtals | 10.897 kg |
27.3.24 Petra ÓF 88 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.233 kg |
Þorskur | 118 kg |
Skarkoli | 6 kg |
Rauðmagi | 4 kg |
Þykkvalúra | 3 kg |
Ufsi | 2 kg |
Samtals | 1.366 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 27.3.24 | 401,29 kr/kg |
Þorskur, slægður | 27.3.24 | 443,15 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 27.3.24 | 182,08 kr/kg |
Ýsa, slægð | 27.3.24 | 136,03 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 27.3.24 | 107,02 kr/kg |
Ufsi, slægður | 27.3.24 | 189,28 kr/kg |
Gullkarfi | 27.3.24 | 143,21 kr/kg |
Litli karfi | 27.3.24 | 8,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 27.3.24 | 120,00 kr/kg |
28.3.24 Kaldbakur EA 1 Botnvarpa | |
---|---|
Karfi | 91.675 kg |
Ufsi | 10.767 kg |
Þorskur | 692 kg |
Langa | 300 kg |
Samtals | 103.434 kg |
27.3.24 Herdís SH 173 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 708 kg |
Samtals | 708 kg |
27.3.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína | |
---|---|
Steinbítur | 10.108 kg |
Þorskur | 718 kg |
Ýsa | 71 kg |
Samtals | 10.897 kg |
27.3.24 Petra ÓF 88 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.233 kg |
Þorskur | 118 kg |
Skarkoli | 6 kg |
Rauðmagi | 4 kg |
Þykkvalúra | 3 kg |
Ufsi | 2 kg |
Samtals | 1.366 kg |