Esau og tengdasonur áfram í varðhaldi

Bern­ar­d Esau, fyrrverandi sjáv­ar­út­vegs­ráðherra Namib­íu,
Bern­ar­d Esau, fyrrverandi sjáv­ar­út­vegs­ráðherra Namib­íu, Ljósmynd/Sjávarútvegsráðuneyti Namibíu

Dómstóll í Namibíu hefur hafnað beiðni Bernards Esau, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra landsins, og Tamson Hatuikulipi, tengdasonar hans, um lausn úr gæsluvarðhaldi gegn tryggingu. Munu þeir því áfram sitja í varðhaldi. Frá þessu greinir namibíski miðillinn Namibian.

Að mati dómsins er ekki ástæða til að ætla að þeir myndu stinga af eða spilla rannsókninni ef þeir yrðu látnir lausir. Hins vegar bendi sönnunargögn til sektar þeirra.

Rannsókn stendur enn yfir á meintum mútum Samherja í Namibíu til handa stjórnmálamanna og tengdra aðila til að fá hestamakrílkvóta þar í landi á undirverði. Málið komst í sviðsljósið eftir umfjöllun Stundarinnar, Kveiks, Al Jazeera og Wikileaks í fyrra.

Segja rannsókn hafna á skattamálum Samherja

Þá er rannsókn sögð hafin á skattamálum Samherja í Namibíu. OCCRP, samtök rannsóknarblaðamanna sem sérhæfa sig í umfjöllun um glæpi og spillingu, greina frá þessu en RÚV greinir frá fyrst íslenskra miðla.

Rannsóknina má að sögn rekja til eiðsvarinnar yfirlýsingar Jóhannesar Stefánssonar, fyrrverandi starfsmanns fyrirtækisins í Namibíu, til namibísku spillingarlögreglunnar.

Segir Jóhannes að fyrirtækið hafi flutt rúman milljarð króna til félaga á Máritíus og Bretlandi til að komast hjá skattgreiðslum. Það hafi félagið gert með því að greiða fyrirtækinu umdeild og óljós „gjöld“, en einnig hafi félagið selt fisk undir kostnaðarverði til fyrirtækja á Kýpur.

Samherji segir um endurtekið efni að ræða

Í tilkynningu Samherja vegna umfjöllunar OCCRP segir að um endurtekið efni um starfsemi Samherja í Namibíu sé að ræða. Segir Samherji umfjöllunina villandi og bendir á fjögur atriði sem séu rangfærslur eða þarfnist nánari skýringa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Hilmir ST 1 Grásleppunet
Grásleppa 4.144 kg
Þorskur 816 kg
Skarkoli 79 kg
Samtals 5.039 kg
19.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Þorskur 402 kg
Grásleppa 170 kg
Skarkoli 30 kg
Steinbítur 16 kg
Samtals 618 kg
19.4.24 Kóngsey ST 4 Grásleppunet
Þorskur 1.213 kg
Grásleppa 404 kg
Skarkoli 77 kg
Samtals 1.694 kg
19.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 1.851 kg
Þorskur 840 kg
Skarkoli 59 kg
Samtals 2.750 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Hilmir ST 1 Grásleppunet
Grásleppa 4.144 kg
Þorskur 816 kg
Skarkoli 79 kg
Samtals 5.039 kg
19.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Þorskur 402 kg
Grásleppa 170 kg
Skarkoli 30 kg
Steinbítur 16 kg
Samtals 618 kg
19.4.24 Kóngsey ST 4 Grásleppunet
Þorskur 1.213 kg
Grásleppa 404 kg
Skarkoli 77 kg
Samtals 1.694 kg
19.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 1.851 kg
Þorskur 840 kg
Skarkoli 59 kg
Samtals 2.750 kg

Skoða allar landanir »