Keypti sér bát eftir tíunda bekk

Axel Örn Guðmundsson.
Axel Örn Guðmundsson. Ljósmynd/Aðsend

„Ég held við séum ekki margir sjómenn sem störfum á leikskólum landsins,“ segir Axel Örn Guðmundsson, sem stundar strandveiðar á sumrin en nemur sálfræði við Háskóla Íslands yfir vetrartímann.

Strandveiðar eru mjög þægilegt sumarstarf þegar maður er í námi. Ef vel fiskast er hægt að hafa góðar tekjur og mér finnst frábært að geta sleppt því að taka námslán. Tekjurnar duga mér líka vel inn í veturinn,“ segir Axel Örn Guðmundsson, 25 ára sálfræðinemi, sem stundar strandveiðar í sumar eins og undanfarin sumur. Axel var nýlagstur að bryggju á Tálknafirði þegar blaðamaður náði tali af honum seint að kveldi í upphafi vikunnar.

„Veturinn sem ég var í tíunda bekk tók ég skipstjórnarréttindi fyrir báta sem eru undir tólf metra langir og ég keypti bátinn minn sumarið eftir að ég kláraði grunnskólann. Ég hef stundað strandveiðar á mínum báti öll sumur síðan. Ég keypti bátinn notaðan af kunningja mínum, Hartmanni Jónssyni, og ég lét bátinn heita nafninu hans. Hartmann var orðinn fullorðinn þegar ég keypti bátinn og hættur að vera til sjós og hann var mjög sáttur þegar hann sá að báturinn bar nafn hans. Hartmann lést nokkrum árum eftir að ég tók við bátnum,“ segir Axel og bætir við að hann hafi keypt bátinn á þrjár milljónir.

Bátur Axels ber nafn fyrri eiganda og hefur reynst honum …
Bátur Axels ber nafn fyrri eiganda og hefur reynst honum vel. Ljósmynd/Aðsend

„Ég gerði samning við Hartmann um að borga helminginn, eina og hálfa milljón, í upphafi sumars en hinn helminginn í lok sumars þegar ég væri búinn að veiða. Ég átti því bátinn skuldlausan í lok þessa fyrsta sumars míns á honum.“

En hvernig gat strákur átt eina og hálfa milljón til að borga út í báti þegar hann hafði nýlokið grunnskóla?

„Ég var búinn að leggja fyrir og safna mér pening, ég hafði verið að vinna með pabba til sjós þegar ég var strákur, ég var öll sumur að veiða með honum og fékk minn hlut. Ég setti líka fermingarpeningana mína í bátasjóðinn minn.“

Talar stundum við mávana

Axel er fæddur á Ísafirði, þaðan sem allt hans móðurfólk er, en hann hefur búið í Kópavogi frá því hann var strákur.

„Ég má veiða hér á vestursvæðinu af því að ég er með lögheimili hjá ömmu minni á Ísafirði. Ég lærði á þessi svæði hér fyrir vestan af róðrum með pabba. Ég færi mig á milli fjarða eftir því hvernig mér líður, því þetta veiðisvæði nær yfir alla Vestfirðina. Þó að mér finnist best að vera fyrir vestan hef ég líka veitt í kringum Snæfellsnesið og víðar. Ég hef líka veitt fyrir sunnan en þá helst grásleppu,“ segir Axel, sem rær alltaf einn eldsnemma að morgni og segist stundum tala við mávana og syngja fyrir himininn, í einverunni tímunum saman úti á ballarhafi.

„Netsambandið úti á hafi er gott, svo ég get hringt, hlustað á hlaðvarpsþætti og tónlist. Mér finnst ekkert mál að vera einn á báti. Auðvitað reyni ég að forðast að lenda í háska, en vissulega hefur einstaka sinnum eitthvað verið að veðri, en aldrei mikil hætta,“ segir Axel, sem er heppinn með það að hann er aldrei sjóveikur.

Sjómenn eiga að velja sjálfir

Hann segir lengd vinnudagsins fara eftir því hvernig veiðarnar gangi hverju sinni.

„Í strandveiðinni er ég aldrei meira en 14 tíma á veiðum í einu, en ég hef líka verið að veiða í öðrum kerfum, til dæmis í leigukvótanum, en þá hef ég verið samfellt í einn og hálfan sólarhring í beit úti á sjó að veiða.“

Fyrirkomulagið í strandveiðum segir hann vera þannig að hann megi veiða 770 kíló á dag, sem honum finnst hamlandi.

„Aðrar hömlur eru þær að ég má ekki veiða föstudaga, laugardaga og sunnudaga, og ég má aðeins veiða tólf daga í mánuði, þessa fjóra mánuði sem strandveiðar standa yfir, í maí, júní, júlí og ágúst.

Að mínu mati ættu sjómenn að velja sína veiðidaga eftir veðri og engu öðru. Þessi óþarfa pressa er á menn að róa í stað þess að hafa 48 daga yfir allt sumarið og geta valið eftir sínu höfði. Svo mætti svæðisskiptingin fara líka mín vegna og sjávarpláss sem eru vel staðsett við fiskimið ættu að fá að njóta þess,“ segir Axel, sem dregur mestmegnis þorsk úr söltum sjó á strandveiðum sínum, en líka aðeins ufsa og einstaka aðrar tegundir fljóta með.

Axel vinnur yfir vetrartímann með háskólanáminu á leikskólanum Núpi í Kópavogi.

„Ég held við séum ekki margir sjómenn sem störfum á leikskólum landsins,“ segir Axel stoltur og bætir við að hann hafi aðeins ætlað að vinna tímabundið á leikskólanum.

„Ég festist þar af því að mér finnst þetta æðislegt starf. Ég vona að sálfræðinámið nýtist mér á leikskólastiginu í framtíðinni,“ segir Axel, sem einnig er langt kominn með nám í viðskiptafræði.

Greinin birtist í Morgunblaðinu 23. júlí 2020.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.3.24 559,44 kr/kg
Þorskur, slægður 18.3.24 503,96 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.3.24 332,79 kr/kg
Ýsa, slægð 18.3.24 217,26 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.3.24 221,12 kr/kg
Ufsi, slægður 18.3.24 222,80 kr/kg
Gullkarfi 18.3.24 234,41 kr/kg
Litli karfi 18.3.24 10,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg
Blálanga, slægð 18.3.24 194,27 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.3.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 10.868 kg
Ýsa 818 kg
Langa 137 kg
Keila 127 kg
Steinbítur 87 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 12.041 kg
18.3.24 Straumey EA 50 Línutrekt
Þorskur 3.803 kg
Ýsa 146 kg
Steinbítur 54 kg
Samtals 4.003 kg
18.3.24 Ás NS 78 Grásleppunet
Grásleppa 2.198 kg
Þorskur 772 kg
Skarkoli 197 kg
Samtals 3.167 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.3.24 559,44 kr/kg
Þorskur, slægður 18.3.24 503,96 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.3.24 332,79 kr/kg
Ýsa, slægð 18.3.24 217,26 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.3.24 221,12 kr/kg
Ufsi, slægður 18.3.24 222,80 kr/kg
Gullkarfi 18.3.24 234,41 kr/kg
Litli karfi 18.3.24 10,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg
Blálanga, slægð 18.3.24 194,27 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.3.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 10.868 kg
Ýsa 818 kg
Langa 137 kg
Keila 127 kg
Steinbítur 87 kg
Ufsi 4 kg
Samtals 12.041 kg
18.3.24 Straumey EA 50 Línutrekt
Þorskur 3.803 kg
Ýsa 146 kg
Steinbítur 54 kg
Samtals 4.003 kg
18.3.24 Ás NS 78 Grásleppunet
Grásleppa 2.198 kg
Þorskur 772 kg
Skarkoli 197 kg
Samtals 3.167 kg

Skoða allar landanir »