140 tonnum ekið suður

Viðey RE við bryggju í Reykjavík.
Viðey RE við bryggju í Reykjavík. Mbl.is/Árni Sæberg

Ísfisktogarinn Viðey RE kom til hafnar á Sauðárkróki í morgun með tæplega 140 tonna afla. Uppistaða hans var ágætur þorskur sem veiddist á Kolbeinseyjarsvæðinu, segir í tilkynningu. Þetta er fyrsta löndun Viðeyjar á Króknum í sumar en öllum afla verður ekið suður til Reykjavíkur til vinnslu.

,,Við hófum veiðar í ,,Nætursölunni” í Víkurálnum og tókum karfaskammtinn á mettíma. Síðan var siglt norður fyrir Vestfirði og austur á Kolbeinseyjarsvæðið með tveimur stuttum stoppum. Þar, sem við vorum að veiðum, voru um 95 sjómílur í Siglunes þannig að við vorum býsna djúpt frá landi. Þorskurinn þar er ágætur eða um þrjú til fimm kíló að jafnaði. Alls vorum við með um 100 tonn af þorski,” segir Kristján E. Gíslason sem var skipstjóri í veiðiferðinni í tilkynningu á vef Brims.

Viðey landaði nokkrum sinnum afla á Sauðárkróki í fyrrasumar en Kiddó segir að munurinn nú sé sá helstur að nú hafi verið hægt að fá ætan þorsk lengur á Vestfjarðamiðum, á svæðum eins og Halanum og Þverál. Nú sé smáfiskurinn allsráðandi og því verði að sækja á miðin úti fyrir Norðurlandi til að fá góðan þorsk.

,,Það er stefnt að því að fara aftur til veiða í kvöld og landa hér aftur á fimmtudaginn. Síðan liggur leiðin vestur og suður áður en landað verður í Reykjavík. Svo stendur til að bæta þriðja tospilinu við þannig að við getum togað með tveimur trollum samtímis líkt og Akurey AK. Þessi breyting hefur reynst Akurey vel en nú er röðin komin að okkur,” segir Kristján E. Gíslason.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 15.4.24 399,61 kr/kg
Þorskur, slægður 15.4.24 544,39 kr/kg
Ýsa, óslægð 15.4.24 468,03 kr/kg
Ýsa, slægð 15.4.24 259,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 15.4.24 102,15 kr/kg
Ufsi, slægður 15.4.24 251,08 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 15.4.24 243,14 kr/kg
Litli karfi 11.4.24 10,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.4.24 Steinunn SF 10 Botnvarpa
Þorskur 25.303 kg
Ufsi 15.260 kg
Samtals 40.563 kg
15.4.24 Heimaey VE 1 Flotvarpa
Kolmunni 1.922.770 kg
Samtals 1.922.770 kg
15.4.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Steinbítur 12.923 kg
Skarkoli 1.836 kg
Sandkoli 81 kg
Þorskur 64 kg
Grásleppa 32 kg
Samtals 14.936 kg
15.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Skarkoli 879 kg
Sandkoli 90 kg
Skrápflúra 59 kg
Grásleppa 38 kg
Þorskur 30 kg
Samtals 1.096 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 15.4.24 399,61 kr/kg
Þorskur, slægður 15.4.24 544,39 kr/kg
Ýsa, óslægð 15.4.24 468,03 kr/kg
Ýsa, slægð 15.4.24 259,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 15.4.24 102,15 kr/kg
Ufsi, slægður 15.4.24 251,08 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 15.4.24 243,14 kr/kg
Litli karfi 11.4.24 10,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.4.24 Steinunn SF 10 Botnvarpa
Þorskur 25.303 kg
Ufsi 15.260 kg
Samtals 40.563 kg
15.4.24 Heimaey VE 1 Flotvarpa
Kolmunni 1.922.770 kg
Samtals 1.922.770 kg
15.4.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Steinbítur 12.923 kg
Skarkoli 1.836 kg
Sandkoli 81 kg
Þorskur 64 kg
Grásleppa 32 kg
Samtals 14.936 kg
15.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Skarkoli 879 kg
Sandkoli 90 kg
Skrápflúra 59 kg
Grásleppa 38 kg
Þorskur 30 kg
Samtals 1.096 kg

Skoða allar landanir »