Veiðin góð á Halamiðum

Höfrungur III AK er nú staddur á Halamiðum. Haraldur Árnason, …
Höfrungur III AK er nú staddur á Halamiðum. Haraldur Árnason, skipstjóri, kveðst ánægður með að þar sé enn að finna þorsk. Ljósmynd/Brim

Góð veiði er nú á Halamiðum að sögn Haraldar Árnasonar, skipstjóra á Höfrungi III AK. Hann segir nú sé beðið eftir því að svokallað Hornbankahólf verði opnað. „Þarna hefur verið hægt að fá góða ýsuveiði og margir horfa til þess nú þegar ýsukvótinn hefur verið aukinn eftir mikinn niðurskurð,“ er haft eftir Haraldi á vef Brims.

Hann kveðst ánægður með að enn sé að finna þorsk á Halanum andstætt stöðu mála í fyrra þegar veiðisvæðið tæmdist og fara þurfti austur að Kolbeinseyjarsvæði til að ná í þorskinn. Þá hefur fjöldi ísfisktogarar sótt það svæði að undanförnu líkt og skip sem aðallega veiða þorsk. Hins vegar eru Halamiðin sagður betri kostur fyrir frystitogara sem sækjast meira eftir ufsa og blönduðum afla.

„Það er ekki annað hægt en að vera ánægður með aflabrögðin í sumar. Við höfum fengið nóg fyrir vinnsluna og betur er ekki hægt að gera. Núna reynum við að veiða sem mest af ufsa og það hefur gengið þokkalega síðustu vikur,“ segir Haraldur.

Hófst á brælu

Fram kemur á vef Brims að Höfrungur III hafi lagt í nýja veiðiferð þriðjudagskvöld eftir löndun í Reykjavík. „Aflinn upp úr sjó var 331 tonn, sem millilandað var í Reykjavík eftir fyrri hluta túrsins, og svo 391 tonn eða rúmlega 720 tonn alls. Mest var þetta ufsi, karfi og þorskur. Þorvaldur Svavarsson og Friðrik Ingason voru með skipið og ég tók við fyrir tæpri viku,“ segir Haraldur.

Bræla var hins vegar á norðanverðum Vestfjarðamiðum og því hófst túrinn á veiðum í Víkurál og Látragrunni.

„Veðrið gekk svo niður og við erum búnir að vera á Halanum í um fjóra daga. Ufsinn fór að láta sjá sig á Halanum í síðasta túr og hér er líka þorskur. Karfinn er horfinn en það er venjulegt ástand. Í júní og júlí var hins vegar mökkur af karfa í Víkurálnum og norðaustur allan kantinn. Ég held að margir séu því fegnir að karfinn sé horfinn af slóðinni því kvótastaða margra leyfði einfaldlega ekki meiri gullkarfaveiði nú undir lok kvótaársins,“ útskýrir Haraldur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Mars BA 74 Handfæri
Þorskur 829 kg
Samtals 829 kg
24.4.24 Hrönn NS 50 Grásleppunet
Grásleppa 1.213 kg
Þorskur 68 kg
Ýsa 42 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.340 kg
24.4.24 Straumnes ÍS 240 Handfæri
Þorskur 2.543 kg
Ufsi 33 kg
Samtals 2.576 kg
24.4.24 Gullmoli NS 37 Grásleppunet
Grásleppa 1.716 kg
Þorskur 157 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.877 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Mars BA 74 Handfæri
Þorskur 829 kg
Samtals 829 kg
24.4.24 Hrönn NS 50 Grásleppunet
Grásleppa 1.213 kg
Þorskur 68 kg
Ýsa 42 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.340 kg
24.4.24 Straumnes ÍS 240 Handfæri
Þorskur 2.543 kg
Ufsi 33 kg
Samtals 2.576 kg
24.4.24 Gullmoli NS 37 Grásleppunet
Grásleppa 1.716 kg
Þorskur 157 kg
Skarkoli 4 kg
Samtals 1.877 kg

Skoða allar landanir »