Mistökin að verja ekki dótturfélögin gegn brotum

Björgólfur Jóhannsson, annar forstjóri Samherja, kveðst furða sig á því …
Björgólfur Jóhannsson, annar forstjóri Samherja, kveðst furða sig á því að Dagens Næringsliv birti viðtal við Jóhannes Stefánsson, fyrrverandi starfsmann Samherja í Namibíu, án þess að spyrja krefjandi spurninga. mbl.is/​Hari

„Það er enginn vafi um að Samherja hefur mistekist að verja dótturfélög sín gegn brotum einstaklinga,“ skrifar Björgólfur Jóhannsson, annars forstjóra Samherja, í aðsendri grein á vef Undercurrent News. Þar segir Björgólfur að Samherji hafi hrint af stað vinnu við að koma á verkferlum sem til þess eru fallnir að koma í veg fyrir að slík brot einstaklinga geti komið fyrir aftur.

Greinin er rituð vegna viðtals norska viðskiptablaðsins Dagens Næringsliv við Jóhannes Stefánsson, fyrrverandi forsvarsmann dótturfélags Samherja í Namibíu, sem var birt 6. ágúst. Aðsenda grein Björgólfs er lítið frábrugðin þeirri grein sem hann ritaði í Dagens Næringsliv 13. ágúst.

Furðar Björgólfur sig á viðtali Dagens Næringsliv og telur að fjölmiðillinn hafi veitt Jóhannesi vettvang til þess að tjá sig án þess að spyrja krefjandi spurninga. Þá hafi Jóhannes verið sérkennilegur uppljóstrari að mati Björgólfs fyrir þær sakir að hann hafi verið gerandi en ekki vitni.

Kjarninn sagði fyrst frá málinu.

Sagður neita að hitta lögmenn Samherja

Jóhannes er sagður hafa neitað í gegnum lögmann sinn að ræða við fulltrúa lögmannsstofunnar Wikborg Rein sem Samherji hefur fengið til að rannsaka starfsemi fyrirtækisins í Namibíu. Björgólfur segir það einkennilegt að Jóhannes hafi ítrekað neitað að ræða við þá sem rannsaka málið þar sem hann hafi getað „sett skilyrði fyrir slíku viðtali, ásmt skilyrðum um hvar slíkt viðtal gæti átt sér stað“.

Þá skrifar Björgólfur að það virðist líta út eins og „hreinskilni og gagnsæi eigi aðeins við þegar maður þarf ekki að svara krefjandi spurningum þeirra sem hafa fulla innsýn í staðreyndir málsins“.

Ásakanirnar sem birtar voru á hendur Samherja komu stjórn og stjórnendum fyrirtækisins á óvert, en enn meira kom það á óvart þegar niðurstöður rannsóknar Wikborg Rein lágu fyrir, skrifar Björgólfur sem kveðst ekki geta farið í smáatriði hvað efnisatriðin varðar þar sem málið er til rannsóknar af opinberum aðilum í fleiri ríkjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 438,01 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 564,71 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,59 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 167,89 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,27 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Auður HU 94 Grásleppunet
Grásleppa 1.274 kg
Þorskur 214 kg
Rauðmagi 23 kg
Skarkoli 1 kg
Steinbítur 1 kg
Samtals 1.513 kg
24.4.24 Báran SI 86 Grásleppunet
Grásleppa 1.135 kg
Þorskur 241 kg
Ufsi 182 kg
Skarkoli 31 kg
Steinbítur 9 kg
Samtals 1.598 kg
24.4.24 Uggi VE 272 Handfæri
Þorskur 702 kg
Karfi 2 kg
Samtals 704 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 438,01 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 564,71 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,59 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 167,89 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,27 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Auður HU 94 Grásleppunet
Grásleppa 1.274 kg
Þorskur 214 kg
Rauðmagi 23 kg
Skarkoli 1 kg
Steinbítur 1 kg
Samtals 1.513 kg
24.4.24 Báran SI 86 Grásleppunet
Grásleppa 1.135 kg
Þorskur 241 kg
Ufsi 182 kg
Skarkoli 31 kg
Steinbítur 9 kg
Samtals 1.598 kg
24.4.24 Uggi VE 272 Handfæri
Þorskur 702 kg
Karfi 2 kg
Samtals 704 kg

Skoða allar landanir »