Sautján umsóknir frá árunum 2015 til 2018 til fiskeldis og fiskvinnslu voru óafgreiddar hjá Matvælastofnun þegar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra svaraði fyrirspurn Jóns Gunnarssonar alþingismanns um stöðu umsókna um starfsleyfi. Þá voru 23 umsóknir frá árinu 2019 óafgreiddar og 19 frá 2020. Flestar umsóknirnar eru um rekstrarleyfi vegna fiskeldis. Í svari iðnaðarráðherra kom fram að 21 umsókn um nýtingarleyfi og virkjanaleyfi er óafgreidd hjá Orkustofnun, þær elstu frá janúar 2019. Umhverfisráðherra hefur ekki svarað fyrirspurn þingmannsins.
„Ég lagði þessar fyrirspurnir fram í júní vegna efnahagslegra afleiðinga kórónuveirunnar. Hafði áhuga á því að sjá hvaða verkefni væru í pípunum og hvað við gætum gert til að greiða þeim leið til verðmætasköpunar,“ segir Jón Gunnarsson um tilefnið. Hann segist hafa kallað eftir því að áætlun um það hvað hægt sé að gera til að koma atvinnuverkefnum hraðar í gegnum frumskóg leyfisumsókna, án þess að slaka á kröfum sem til þeirra eru gerðar.
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra segir í svari sínu að Matvælastofnun hafi ekki getað afgreitt hluta af þeim rekstrarleyfum fyrir fiskeldi sem sótt hafi verið um vegna þess að þau hafi ekki verið tæk til meðferðar eða afgreiðslu þeirra seinkað vegna þess að umsækjandi hafi ekki skilað fullnægjandi gögnum.
Ráðherra lætur þess einnig getið að meðal aðgerða ráðuneytisins til að bregðast við áhrifum kórónuveirufaraldursins hafi verið að flýta afgreiðslu rekstrarleyfa í fiskeldi og sé sú vinna í gangi hjá Matvælastofnun.
Spurður hvort honum þyki kerfið vinna hægt svarar Jón því til að sett hafi verið upp flókið og erfitt regluverk. Nefnir hann þrautagöngu Kalkþörungafélagsins vegna stækkunar verksmiðjunnar á Bíldudal og byggingar nýrrar verksmiðju í Súðavík sem sagt var frá í Morgunblaðinu í gær.
Nánari umfjöllun er að finna í Morgunblaðinu í dag.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 24.4.24 | 436,69 kr/kg |
Þorskur, slægður | 24.4.24 | 566,23 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 24.4.24 | 213,60 kr/kg |
Ýsa, slægð | 24.4.24 | 118,02 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 24.4.24 | 168,00 kr/kg |
Ufsi, slægður | 24.4.24 | 205,91 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 24.4.24 | 228,36 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 6,89 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 16.635 kg |
Ýsa | 451 kg |
Steinbítur | 211 kg |
Ufsi | 34 kg |
Hlýri | 26 kg |
Keila | 14 kg |
Karfi | 4 kg |
Langa | 3 kg |
Samtals | 17.378 kg |
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína | |
---|---|
Þorskur | 1.843 kg |
Steinbítur | 344 kg |
Keila | 55 kg |
Ýsa | 54 kg |
Ufsi | 35 kg |
Karfi | 16 kg |
Hlýri | 4 kg |
Langa | 2 kg |
Samtals | 2.353 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 24.4.24 | 436,69 kr/kg |
Þorskur, slægður | 24.4.24 | 566,23 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 24.4.24 | 213,60 kr/kg |
Ýsa, slægð | 24.4.24 | 118,02 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 24.4.24 | 168,00 kr/kg |
Ufsi, slægður | 24.4.24 | 205,91 kr/kg |
Djúpkarfi | 9.4.24 | 38,00 kr/kg |
Gullkarfi | 24.4.24 | 228,36 kr/kg |
Litli karfi | 24.4.24 | 6,89 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 19.4.24 | 169,00 kr/kg |
24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 16.635 kg |
Ýsa | 451 kg |
Steinbítur | 211 kg |
Ufsi | 34 kg |
Hlýri | 26 kg |
Keila | 14 kg |
Karfi | 4 kg |
Langa | 3 kg |
Samtals | 17.378 kg |
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína | |
---|---|
Þorskur | 1.843 kg |
Steinbítur | 344 kg |
Keila | 55 kg |
Ýsa | 54 kg |
Ufsi | 35 kg |
Karfi | 16 kg |
Hlýri | 4 kg |
Langa | 2 kg |
Samtals | 2.353 kg |