Vilja endurskoðun á fiskveiðistjórnunarkerfinu

Frá landsþingi Ungra jafnaðarmanna 5. september 2020.
Frá landsþingi Ungra jafnaðarmanna 5. september 2020. Ljósmynd Hari

„Með milliverðlagningu á sjávarafurðum flytja sjávarútvegsfyrirtæki hagnað sinn til lágskattalanda og lækka þannig skiptahlut sjómanna og komast hjá eðlilegum skattgreiðslum á Íslandi,“ segir í stjórnmálaályktun Ungra jafnaðarmanna sem héldu landsfund 5. september.

Stjórnálaályktun UJ var send á fjölmiðla í morgun.

„Ætla má að íslenskt samfélag verði af gríðarlegum fjármunum vegna þessara aðferða sem verð[ur] best lýst sem ráni um hábjartan dag. Ungir jafnaðarmenn krefjast þess að stjórnvöld láti rannsaka söluvirði sjávarfangs og hve stór hluti raunverulegs söluhagnaðar skilar sér til Íslands.

Ungir jafnaðarmenn vilja ennfremur heildarendurskoðun á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Núverandi veiðiheimildir verði afturkallaðar og þeim útdeilt aftur á markaðsvirði, með skýrum kvöðum um samfélagslega og umhverfislega ábyrgð og að sérstakt tillit verði tekið til smáútgerða í krókamarkskerfi með það að markmiði að efla samfélög á landsbyggðinni. Þá ítreka Ungir jafnaðarmenn stuðning sinn við nýja stjórnarskrá með skýru ákvæði um þjóðareign á auðlindum í samræmi við niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslu 20. október 2012.

Ungir jafnaðarmenn standa með fjölmiðlafólki og fordæma Samherja fyrir árásir fyrirtækisins á stéttina vegna fréttaflutnings um mútugreiðslur í Namibíu. Um er að ræða alvarlegar árásir stórfyrirtækis á frelsi fjölmiðla sem eiga ekki að viðgangast í lýðræðisríki.

Velferðarkerfi sem virkar

COVID-faraldurinn og efnahagslegar afleiðingar hans hafa varpað ljósi á stór göt í öryggisneti almannatryggingakerfisins. Ofan á heilsubrest og kvíða vegna heimsfaraldurs og áhyggjur af versnandi efnahagsástandi blasir atvinnuleysi og fjárhagsleg neyð við fjölda fólks. Bregðast þarf við án tafar með hækkun grunnatvinnuleysisbóta og breytinga á reglum svo þær grípi líka fólk sem á takmörkuð eða engin réttindi innan núverandi kerfis. Þá þarf ríkissjóður að tryggja sveitarfélögunum nauðsynlegt fjármagn til að þau geti sinnt nauðsynlegri þjónustu við íbúa sína sem nú reynir á sem aldrei fyrr.

Til framtíðar vilja Ungir jafnaðarmenn heildarendurskoðun á almannatryggingakerfinu með það markmið að ryðja úr vegi ýmsum þeim hindrunum, skilyrðingum, skerðingum, bið og eftirliti sem notendum er boðið upp á í dag. Almannatryggingakerfið á alltaf að vera til staðar, skilyrðislaust.

Leið norrænnar jafnaðarstefnu út úr atvinnuleysiskreppu felst í því að félagslegt réttlæti og ábyrg efnahagsstefna fari hönd í hönd – og það er rétta leiðin: Vinna, velferð og samstaða. Við vísum þeirri bábilju á bug að öflugt velferðarkerfi og traustar atvinnuleysistryggingar séu hindrun í vegi efnahagslegra framfara. Svo er ekki. Enda er alþekkt að margar þeirra þjóða sem leggja mest upp úr opinberu velferðarkerfi eru einnig meðal þeirra sem búa við mesta hagsæld.

Gerum launaþjófnað refsiverðan

Ungir jafnaðarmenn ávíta stjórnvöld fyrir að hafa ekki enn staðið við loforð, sem gefin voru í tengslum við undirritun kjarasamninga á almennum vinnumarkaði árið 2019, um að gera kjarasamningsbrot á borð við launaþjófnað refsi[verð]. Launaþjófnaður er samfélagsmein sem bitnar helst á fólki sem hefur ekki verið kynnt fyrir réttindum sínum eða hefur ríkt tilefni til að óttast afleiðingarnar af því að láta í sér heyra sökum valdaójafnvægis á vinnustað. Stór hluti þessa hóps er fólk af erlendu bergi brotið og ýtir þetta því undir ójöfnuð í samfélaginu,“ segir ennfremur í stjórnmálaályktunum sem samþykktar voru á landsfundinum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 27.3.24 401,29 kr/kg
Þorskur, slægður 27.3.24 443,15 kr/kg
Ýsa, óslægð 27.3.24 182,08 kr/kg
Ýsa, slægð 27.3.24 136,03 kr/kg
Ufsi, óslægður 27.3.24 107,02 kr/kg
Ufsi, slægður 27.3.24 189,28 kr/kg
Gullkarfi 27.3.24 143,21 kr/kg
Litli karfi 27.3.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg
Blálanga, slægð 27.3.24 120,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

28.3.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet
Grásleppa 2.961 kg
Þorskur 217 kg
Samtals 3.178 kg
28.3.24 Helga Sæm ÞH 70 Grásleppunet
Grásleppa 4.013 kg
Samtals 4.013 kg
28.3.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet
Grásleppa 898 kg
Þorskur 92 kg
Skarkoli 13 kg
Samtals 1.003 kg
28.3.24 Fengur EA 207 Grásleppunet
Grásleppa 1.217 kg
Þorskur 104 kg
Skarkoli 14 kg
Rauðmagi 4 kg
Samtals 1.339 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 27.3.24 401,29 kr/kg
Þorskur, slægður 27.3.24 443,15 kr/kg
Ýsa, óslægð 27.3.24 182,08 kr/kg
Ýsa, slægð 27.3.24 136,03 kr/kg
Ufsi, óslægður 27.3.24 107,02 kr/kg
Ufsi, slægður 27.3.24 189,28 kr/kg
Gullkarfi 27.3.24 143,21 kr/kg
Litli karfi 27.3.24 8,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg
Blálanga, slægð 27.3.24 120,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

28.3.24 Blíðfari ÓF 70 Grásleppunet
Grásleppa 2.961 kg
Þorskur 217 kg
Samtals 3.178 kg
28.3.24 Helga Sæm ÞH 70 Grásleppunet
Grásleppa 4.013 kg
Samtals 4.013 kg
28.3.24 Hafdís Helga EA 51 Grásleppunet
Grásleppa 898 kg
Þorskur 92 kg
Skarkoli 13 kg
Samtals 1.003 kg
28.3.24 Fengur EA 207 Grásleppunet
Grásleppa 1.217 kg
Þorskur 104 kg
Skarkoli 14 kg
Rauðmagi 4 kg
Samtals 1.339 kg

Skoða allar landanir »