Ryan Scatterty, stjórnarformaður skoska sjávarútvegssambandsins (SSA), sakar Nicole Sturgeon, forsætisráðherra skosku heimastjórnarinnar, um að grafa undan samningsstöðu Breta í viðræðum við Evrópusambandið með því að krefjast þess að breska ríkisstjórnin gefi eftir ófrávíkjanlega kröfu sína um að bresk fiskimið lúti breskri stjórn eftir að Bretar ganga úr innri markaði ESB um áramót.
Vísar hann þar til ummæla sem skoskir embættismenn létu falla í viðræðum milli skosku heimastjórnarinnar og samningamanna Evrópusambandsins, á fundi sem aðskilinn var frá viðræðum ríkisstjórnar Breta og sambandsins. Fulltrúar skosku ríkisstjórnarinnar eru sagðir hafa sagt að „báðir aðilar þurfi að gefa eftir“ í viðræðum um sjávarútveg.
Scatterty segir í samtali við götublaðið Express að hann sé „virkilega vonsvikinn“ að heyra að Sturgeon hafi farið á bak við bresku ríkisstjórnina og segir að Sturgeon hafi „næstum boðið Evrópusambandinu allan fiskveiðirétt“ gegn því að Skotar hefðu greiða leið til að ganga inn í ESB.
Er hann ósammála Fergus Ewing, ráðherra byggðamála í Skotlandi, sem hefur sagt að brexit-viðræðurnar væru ekki komnar í öngstræti vegna sjávarútvegsmála hefðu skoskir ráðherrar haft aðkomu að þeim.
Réttmætar áhyggjur af útgöngu án samnings
Scatterty telur að áhyggjur skosku heimastjórnarinnar af útgöngu Breta án samnings við ESB séu réttmætar og ósviknar. Hins vegar séu aðgerðir þeirra og yfirlýsingar til þess fallnar að skaða samningsstöðu Breta.
Skoska heimastjórnin hefur ekki farið leynt með andstöðu sína við útgöngu Breta úr Evrópusambandinu, en í þjóðaratkvæðagreiðslunni um útgönguna árið 2016 kusu 62% Skota gegn útgöngu samanborið við 48% á landsvísu. „Þau hafa gert það mjög skýrt að langtímamarkmið skosku heimastjórnarinnar, og Skoska þjóðarflokksins, er að ganga aftur í Evrópusambandið,“ segir Scatterly.