Samherji og Norðurál hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um kaup Samherja á lóð og byggingum Norðuráls við Helguvík.
Sjávarútvegsfyrirtækið hefur í hyggju að hefja laxeldi á landi, svokallaða landeldisstöð, og nýta til þess byggingar Norðuráls sem upphaflega átti að nota fyrir álver en ekki fékkst raforka fyrir.
Þetta segir Sólveig Kr. Bergmann, upplýsingafulltrúi Norðuráls, sem vill ekkert tjá sig um mögulegt kaupverð. „Næstu vikur fara í að kanna hagkvæmnina og möguleikana til að byggja landeldisstöð,“ segir hún en Fréttablaðið greindi frá málinu í morgun og vitnaði í heimildir. Búist er við því að niðurstaða úr frumathugun verði tilbúin fyrir áramót.
Að sögn Sólveigar var nýlega skrifað undir viljayfirlýsinguna. Norðurál hafði farið fram á það við bæjarstjórnir Reykjanesbæjar og Suðurnesjabæjar að þær rýmkuðu fyrir leyfilega nýtingu á svæðinu við Helguvík. „Við höfum undanfarna mánuði verið að leita að góðri lendingu og að finna lausnir fyrir aðila sem henta best“ segir hún og bætir við að Samherji hafi sett fram lausn sem „virkaði raunhæf“. „Fólk hefur nálgast okkur með ýmsar hugmyndir en þetta hefur gengið lengst.“
Sólveig kveðst vona að það finnist á endanum lausn og nýting sem kemur öllum vel, þar á meðal íbúum í nágrenninu.
Samherji er þegar með fiskeldisstöðvar í Grindavík og á Vatnsleysuströnd.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.3.24 | 559,44 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.3.24 | 503,99 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.3.24 | 331,72 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.3.24 | 216,50 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.3.24 | 220,69 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.3.24 | 222,80 kr/kg |
Gullkarfi | 18.3.24 | 233,55 kr/kg |
Litli karfi | 18.3.24 | 10,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 18.3.24 | 194,27 kr/kg |
18.3.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 10.868 kg |
Ýsa | 818 kg |
Langa | 137 kg |
Keila | 127 kg |
Steinbítur | 87 kg |
Ufsi | 4 kg |
Samtals | 12.041 kg |
18.3.24 Straumey EA 50 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.803 kg |
Ýsa | 146 kg |
Steinbítur | 54 kg |
Samtals | 4.003 kg |
18.3.24 Ás NS 78 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.198 kg |
Þorskur | 772 kg |
Skarkoli | 197 kg |
Samtals | 3.167 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 18.3.24 | 559,44 kr/kg |
Þorskur, slægður | 18.3.24 | 503,99 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 18.3.24 | 331,72 kr/kg |
Ýsa, slægð | 18.3.24 | 216,50 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 18.3.24 | 220,69 kr/kg |
Ufsi, slægður | 18.3.24 | 222,80 kr/kg |
Gullkarfi | 18.3.24 | 233,55 kr/kg |
Litli karfi | 18.3.24 | 10,00 kr/kg |
Blálanga, óslægð | 11.3.24 | 50,00 kr/kg |
Blálanga, slægð | 18.3.24 | 194,27 kr/kg |
18.3.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 10.868 kg |
Ýsa | 818 kg |
Langa | 137 kg |
Keila | 127 kg |
Steinbítur | 87 kg |
Ufsi | 4 kg |
Samtals | 12.041 kg |
18.3.24 Straumey EA 50 Línutrekt | |
---|---|
Þorskur | 3.803 kg |
Ýsa | 146 kg |
Steinbítur | 54 kg |
Samtals | 4.003 kg |
18.3.24 Ás NS 78 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 2.198 kg |
Þorskur | 772 kg |
Skarkoli | 197 kg |
Samtals | 3.167 kg |