Baader kaupir Skagann 3X

Skagionn 3X er meðal fremstu fyrirtækja í tækninýjungum þegar kemur …
Skagionn 3X er meðal fremstu fyrirtækja í tækninýjungum þegar kemur að fiskvinnslu.

Baader og Skaginn 3X hafa sent frá sér tilkynningu um kaup Baader á meirihluta í Skaganum 3X. Viðskiptin eru háð venjubundnum fyrirvörum um samþykki opinberra aðila. Ráðgert er að þeim fyrirvörum verði aflétt í ársbyrjun 2021.

„Samstarf þetta er okkur mikið gleðiefni og ánægjulegt að geta í sameiningu boðið viðskiptavinum okkar heildstætt vöruframboð af framúrskarandi lausnum við vinnslu sjávarafurða“ segir Petra Baader, forstjóri Baader í tilkynningu. 

„Með því að samtvinna áratuga sköpun, þekkingu og reynslu Baader við okkar sérþekkingu byggða á samstarfi og nálægð við öflugan sjávarútveg munum við efla þróun og nýsköpun til muna“ segir Ingólfur Árnason, forstjóri Skagans 3X í tillkynningu. 

Ingólfur Árnason mun áfram gegna starfi forstjóra Skagans 3X og mun njóta liðsinnis núverandi stjórnendateymis fyrirtækisins. Að uppfylltum fyrirvörum samningsins mun sölu- og markaðsstarf Skagans 3X verða samþætt hinu öfluga og víðfeðma sölukerfi Baader.

„Þar til fyrirvörum samnings verður aflétt mun núverandi starfsemi fyrirtækjanna haldast óbreytt,“ segir í tilkynningu.  

Baader er þýskt stórfyrirtæki sem sérhæfir sig í gerð matvinnsluvéla. Skaginn 3x er matvælavinnslufyrirtæki. 

 Sameiginleg yfirlýsing bæjarstjórna Akraness og Ísafjarðarbæjar

„Í morgun var tilkynnt í fjölmiðlum að fyrirtækið Skaginn 3X og stórfyrirtækið Baader hafi ákveðið að sameina krafta sína á næsta ári, með fyrirvara um samþykki þar til bærra eftirlitsstofnana.

Um afar ánægjulegar fréttir er að ræða, ekki síst á þeim sérstöku tímum sem nú blasa við í íslensku samfélagi og heimsbyggðinni allri.

Skaginn 3X er með starfsstöðvar bæði á Akranesi og Ísafirði. Á sameiginlegum fundi í gærkvöldi fengu bæjarfulltrúar sérstaka kynningu á þessum áformum frá Ingólfi Árnasyni forstjóra Skagans 3X og nokkrum lykilstarfsmönnum.

Ljóst er að í samrekstri Skagans 3X og Baader felast mikil tækifæri til að vaxtar með aukinni framleiðslu afurða fyrirtækisins og sölu þeirra.  Þá er ljóst að einnig felast í þessu tækifæri til að stórefla rannsókna og þróunarstarf til hagsbóta fyrir starfsfólk og íslenskt samfélag.

Einhugur er meðal bæjarfulltrúa um að fylgja fyrirtækjunum í þessari vegferð enda er fyrirtækið Skaginn 3X með sterkar rætur í báðum bæjarfélögum.

Ástæða er til að fagna þessum tímamótum og óska fyrirtækinu og bæjarbúum til hamingju með áfangann og þessi merku tíðindi,“ segir í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 501,21 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 371,38 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 197,72 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 8.181 kg
Þorskur 404 kg
Skarkoli 88 kg
Ýsa 78 kg
Samtals 8.751 kg
18.4.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína
Steinbítur 3.179 kg
Þorskur 460 kg
Skarkoli 160 kg
Ýsa 94 kg
Samtals 3.893 kg
18.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 1.581 kg
Ýsa 18 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.616 kg
18.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 923 kg
Ýsa 369 kg
Þorskur 199 kg
Hlýri 78 kg
Skarkoli 56 kg
Langa 25 kg
Ufsi 18 kg
Samtals 1.668 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 18.4.24 501,21 kr/kg
Þorskur, slægður 18.4.24 634,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 18.4.24 371,38 kr/kg
Ýsa, slægð 18.4.24 140,96 kr/kg
Ufsi, óslægður 18.4.24 197,72 kr/kg
Ufsi, slægður 18.4.24 265,14 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 18.4.24 172,97 kr/kg
Litli karfi 18.4.24 70,38 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

18.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 8.181 kg
Þorskur 404 kg
Skarkoli 88 kg
Ýsa 78 kg
Samtals 8.751 kg
18.4.24 Eyrarröst ÍS 201 Landbeitt lína
Steinbítur 3.179 kg
Þorskur 460 kg
Skarkoli 160 kg
Ýsa 94 kg
Samtals 3.893 kg
18.4.24 Sæli BA 333 Lína
Þorskur 1.581 kg
Ýsa 18 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 1.616 kg
18.4.24 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Steinbítur 923 kg
Ýsa 369 kg
Þorskur 199 kg
Hlýri 78 kg
Skarkoli 56 kg
Langa 25 kg
Ufsi 18 kg
Samtals 1.668 kg

Skoða allar landanir »