Eins og nýsleginn túskildingur

Nokkurra vikna vinna starfsmanna Slippsins í Reykjavík hefur skilað sér …
Nokkurra vikna vinna starfsmanna Slippsins í Reykjavík hefur skilað sér í glæsilegu skipi, sem er núna orðið eins og nýtt. mbl.is/Sisi

Frystitogarinn Örfirisey RE 4, sem Brim hf. gerir út, hefur undanfarnar vikur verið í Slippnum í Reykjavík. Eftir barning í úthafinu mánuðum saman var togarinn farinn að láta verulega á sjá og mikil þörf á því að taka hann rækilega í gegn.

Örfirisey RE kom til Reykjavíkur að morgni 28. september sl. eftir hefðbundna veiðiferð. Aflinn var rúmlega 1.000 tonn ef miðað er við fisk upp úr sjó. Þegar búið var að landa úr Örfirisey var skipið tekið í slipp þar sem fram undan var vélarupptekt, málun og hefðbundið viðhald. Þeir vegfarendur sem hafa reglulega átt leið um Slippsvæðið hafa getað fylgst með því hvernig ryð og skemmdir viku smám saman fyrir björtum fánalitunum. Og þegar þetta rúmlega þrítuga gamla skip verður sjósett að nýju verður það orðið eins og nýsleginn túskildingur. Það mun halda á veiðar á ný fljótlega upp úr næstu mánaðamótum.

Örfirisey er stálskip, smíðað í Kristiansund í Noregi árið 1988. Það hét fyrst Pólarborg og var gert út frá Færeyjum. En útgerðin varð gjaldþrota og Grandi hf. keypti skipið til landsins árið 1992. Síðar fékk útgerðarfélagið nafnið HB Grandi og enn síðar Brim. Ýmsar breytingar hafa verið gerðar á skipinu í gegnum tíðina. Það var lengt um 10 metra í Póllandi 1998 og mælist eftir það 1.845 brúttótonn. Árið 2014 voru settir veltitankar í skipið, sem juku sjóhæfni þess til muna.

Þegar Örfirisey var komin í Slippinn beið manna mikil viðhaldsvinna.
Þegar Örfirisey var komin í Slippinn beið manna mikil viðhaldsvinna. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Þess hefur verið gætt að hafa ætíð nýjasta vinnslubúnað í skipinu, bæði til að vinna aflann og frysta. Árið 2012 setti Kælismiðjan Frost nýtt frystikerfi um borð í Örfirisey.

Brim gerir út tvo vel útbúna frystitogara sem veiða grálúðu, karfa, þorsk, ýsu, ufsa, gulllax og makríl auk ýmissa annarra fisktegunda. Aflinn er stærðarflokkaður og ýmist flakaður eða frystur heill um leið og hann kemur um borð.

Afar fengsæl systurskip

Auk Örfiriseyjar gerir Brim hf. út systurskipið Höfrung lll. Bæði þessi skip hafa aflað vel í gegnum tíðina og verið í hópi fengsælustu togara íslenska flotans. Aflaverðmætið skiptir tugum milljarða í gegnum tíðina. Skipstjórar á Örfirisey eru nú Þór Þórarinsson og Arnar Ævarsson.

Það kemur sér vel fyrir Brim hf. að hafa Slippinn í næsta nágrenni í Gömlu höfnina í Reykjavík. Faxaflóahafnir sf. eiga tvær dráttarbrautir á Slippsvæðinu. Dráttarbrautirnar, ásamt lóðinni þar sem brautirnar standa, eru í dag leigðar Stálsmiðjunni til upptöku og viðgerða á skipum.

Á þessu svæði hafa frá því að hafnargerð hófst í Reykjavík fyrir rúmri öld verið stundaðar upptökur og viðgerðir á skipum og þar er að finna samfellda sögu þessarar atvinnugreinar. Erlendir ferðamenn hafa sýnt Slipnnum mikinn áhuga og tekið þar ljósmyndir enda hafa margir þeirra aldrei áður séð skip á þurru landi.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 15.4.24 395,03 kr/kg
Þorskur, slægður 15.4.24 544,39 kr/kg
Ýsa, óslægð 15.4.24 458,86 kr/kg
Ýsa, slægð 15.4.24 259,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 15.4.24 102,15 kr/kg
Ufsi, slægður 15.4.24 252,99 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 15.4.24 243,14 kr/kg
Litli karfi 11.4.24 10,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

15.4.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Skarkoli 1.836 kg
Sandkoli 81 kg
Þorskur 64 kg
Grásleppa 32 kg
Samtals 2.013 kg
15.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Skarkoli 879 kg
Sandkoli 90 kg
Skrápflúra 59 kg
Grásleppa 38 kg
Þorskur 30 kg
Samtals 1.096 kg
15.4.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Steinbítur 2.130 kg
Þorskur 327 kg
Ýsa 33 kg
Samtals 2.490 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 15.4.24 395,03 kr/kg
Þorskur, slægður 15.4.24 544,39 kr/kg
Ýsa, óslægð 15.4.24 458,86 kr/kg
Ýsa, slægð 15.4.24 259,71 kr/kg
Ufsi, óslægður 15.4.24 102,15 kr/kg
Ufsi, slægður 15.4.24 252,99 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 15.4.24 243,14 kr/kg
Litli karfi 11.4.24 10,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 11.3.24 50,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

15.4.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Skarkoli 1.836 kg
Sandkoli 81 kg
Þorskur 64 kg
Grásleppa 32 kg
Samtals 2.013 kg
15.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Skarkoli 879 kg
Sandkoli 90 kg
Skrápflúra 59 kg
Grásleppa 38 kg
Þorskur 30 kg
Samtals 1.096 kg
15.4.24 Elli P SU 206 Línutrekt
Steinbítur 2.130 kg
Þorskur 327 kg
Ýsa 33 kg
Samtals 2.490 kg

Skoða allar landanir »