„Náðum einhvern veginn alltaf að blotna“

Hallveig Karlsdóttir byrjaði ung að vinna í fiski og þegar …
Hallveig Karlsdóttir byrjaði ung að vinna í fiski og þegar hún var komin í háskóla ákvað hún að færa sig úr viðskiptafræði yfir í sjávarútvegsfræði. Árið hefur verið krefjandi enda kórónuveirufaraldurinn flækt störf gæðastjóra í sjávarútvegi til muna.

Áhugi Hallveigar Karlsdóttur á sjávarútvegi kviknaði snemma. Hún ólst upp á Borgarfirði eystri og minnist þess að hafa strax sem barn verið fengin til að leysa ýmis verkefni af hendi í fiskverkun föður síns, Karls Sveinssonar.

„Ég hef verið pínulítil þegar ég byrjaði að vinna en elsta minningin sem ég á úr fiskvinnslunni er af mér og bekkjarbróður mínum, báðum klæddum í hanska sem náðu alveg upp að öxlum, önnum kafin við að pækla fisk. Til að ná neðstu fiskunum upp úr karinu þurftum við að standa á kassa og náðum einhvern veginn alltaf að blotna, enda voru handleggirnir stuttir,“ segir Hallveig en hún er í dag gæðastjóri Skinneyjar-Þinganess á Höfn í Hornafirði.

Hallveig fæddist árið 1988 og segir að árgangur hennar í grunnskólanum hafi verið nokkuð stór og öll börnin með sterka tengingu við sjávarútveginn. „Þegar mikið var að gera, bátar á sjó og vöntun á mannskap í aðgerð var ég send í skólann með skilboð um að boða fólk í vinnu og man ég að við vorum öll afskaplega dugleg og vinnusöm. Okkur fannst gaman að fá að vinna með fullorðna fólkinu og auðvitað vorum við í störfum sem voru bæri einföld og ekki hættuleg, og fylgst náið með okkur.“

Skip Skinney-Þinganess setja svip sinn á Höfn, en fyrirtækið skiptir …
Skip Skinney-Þinganess setja svip sinn á Höfn, en fyrirtækið skiptir miklu máli í atvinnulífi Hornfirðinga. mbl.is/Ómar Óskarsson

Þegar hún var komin í háskóla rann upp fyrir Hallveigu að það gæti verið upplagt fyrir hana að afla sér menntunar sem gæti nýst í sjávarútvegi. „Áður hafði ég lokið námi í hestatamningum frá Hólaskóla en skrái mig síðan í viðskiptafræðinám hjá Háskólanum á Akureyri. Ég var á öðru ári í náminu þegar ég fann að sjávarútvegurinn kallaði á mig og áttaði mig á að þar biðu mín fjölbreyttir starfsmöguleikar.“

Hallveig fékk stóran hluta viðskiptafræðinámsins metinn upp í gráðu í sjávarútvegsfræðum og blómstraði í náminu. Hún hafði ekki útskrifast frá HA þegar henni var boðið starf gæðastjóra. „Ég þekkti aðeins til hjá Skinney-Þinganesi hafandi stundað nám með vinnslustjóranum, og var ráðin sem gæðastjóri til að stýra gæðamálum bæði hjá starfsstöð fyrirtækisins á Höfn og í bolfiskvinnslunni sem félagið rekur á Þorlákshöfn.“

Nákvæmir og mikilvægir ferlar

Að sögn Hallveigar er algengt að fólk skilji ekki í hverju hlutverk gæðastjóra er fólgið og margir sem halda að starfið snúist fyrst og fremst um sýnatökur. „Það er vissulega hluti af starfinu að taka sýni til skoðunar en öðru fremur ber gæðastjórinn ábyrgð á flóknum gæðakerfum og verklagsreglum sem ná yfir alla ferla jafnt frá veiðum og vinnslu til flutninga.“

Hallveig segir sjávarútvegsfyrirtæki í dag fylgja ströngum stöðlum sem bæði eiga að tryggja hámarksgæði og matvælaöryggi framleiddra afurða. Eru hafðar nánar gætur á fiskinum og hvert skref vaktað og skrásett í þaula. Er þetta m.a. gert til að fullnægja vottunarskilyrðum og mæta kröfum kaupenda, og skiptir miklu máli að haldið sé utan um gæðaeftirlitið af fagmennsku. „Kaupendur gera æ ríkari kröfur um matvælaöryggi og þurfum við að geta framvísað öllum þeim gögnum sem óskað er eftir þegar gerðar eru úttektir á framleiðslunni.“

Vinnan er fjölbreytt en býður líka upp á ákveðinn sveigjanleika. „Vinnutíminn er tiltölulega reglulegur en mikilvægt að vera til staðar á meðan vinnsla er í gangi. Meiri sveigjanleiki er í þeim hluta starfsins sem snýr að frágangi skjala og finnst mér ágætt að sinna þeim verkum seinni part dags eða um helgar.“

Með hagsmuni neytenda að leiðarljósi

Ekki ætti að koma á óvart að kórónuveirufaraldurinn hefur flækt starfsemina hjá Skinney-Þinganesi. Eins og önnur sjávarútvegsfyrirtæki hefur útgerðin þurft að tryggja bæði að faraldurinn raski ekki framleiðslu eða hafi áhrif á öryggi þeirra matvæla sem fyrirtækið selur. Segir Hallveig að hafi m.a. verið ráðist í víðtækt áhættumat þar sem rýnt var í alla ferla og mögulega áhættuþætti, s.s. hvað snertir starfsfólkið, hráefnið og umbúðirnar. „Við þurftum að endurmeta kerfið allt út frá þessum eina þætti enda matvælaöryggi okkar aðalverkefni ásamt afhendingaröryggi framleiddra afurða.“

Fiskurinn á færibandinu í vinnslunni í Höfn.
Fiskurinn á færibandinu í vinnslunni í Höfn.

Var gripið til þess ráðs að aðskilja hópa starfsmanna eins og frekast var unnt, m.a. með það fyrir augum að ef smit kæmi upp myndi nægja að setja einn hóp í einangrun og þannig halda starfsemi gangandi. „Það sem má ekki gerast er að við missum alla út og að framleiðslan lamist. Við þurfum að tryggja öryggi starfsfólks okkar en líka tryggja að neytendur verði ekki fyrir röskun á framboði sjávarafurða,“ segir Hallveig og bætir við að aðgerðir félagsins vegna faraldursins hafi gengið afskaplega vel.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,81 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 192,14 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,46 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,35 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Tryllir GK 600 Grásleppunet
Grásleppa 1.264 kg
Þorskur 164 kg
Skarkoli 115 kg
Rauðmagi 20 kg
Samtals 1.563 kg
25.4.24 Loftur HU 717 Handfæri
Þorskur 408 kg
Karfi 74 kg
Ufsi 35 kg
Samtals 517 kg
25.4.24 Von HU 170 Grásleppunet
Grásleppa 1.092 kg
Skarkoli 590 kg
Þorskur 502 kg
Ýsa 97 kg
Steinbítur 6 kg
Sandkoli 3 kg
Samtals 2.290 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,81 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 192,14 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,46 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,35 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Tryllir GK 600 Grásleppunet
Grásleppa 1.264 kg
Þorskur 164 kg
Skarkoli 115 kg
Rauðmagi 20 kg
Samtals 1.563 kg
25.4.24 Loftur HU 717 Handfæri
Þorskur 408 kg
Karfi 74 kg
Ufsi 35 kg
Samtals 517 kg
25.4.24 Von HU 170 Grásleppunet
Grásleppa 1.092 kg
Skarkoli 590 kg
Þorskur 502 kg
Ýsa 97 kg
Steinbítur 6 kg
Sandkoli 3 kg
Samtals 2.290 kg

Skoða allar landanir »