„Minna um fíflalæti þegar mamma er á svæðinu“

Ótrúlegt en satt að síðasta fiskbúðin í Keflavík lokaði 2015. …
Ótrúlegt en satt að síðasta fiskbúðin í Keflavík lokaði 2015. Þetta stolta sjávarpláss fékk loks aftur fiskbúð á þessu ári og sýna heimamenn búðini mikinn áhuga að sögn eigenda. Víkurfréttir/Páll Ketilsson

Viðtökurnar fyrstu mánuðina eftir opnun Fiskbúðar Reykjaness sýna að Keflvíkinga sárvantaði góða fiskbúð. Sigurður Magnússon er eigandi búðarinnar og segir töluvert meiri umferð þar en í fiskbúðinni sem móðir hans rak á sínum tíma á öðrum stað í bænum en lokaði 2015.

„Þar var önnur samsetning á viðskiptavinahópnum, önnur umgjörð og vöruúrval. Hér getur gamla fólkið í bænum fundið hefðbundna fiskinn en við erum líka með tilbúna rétti sem tekur enga stund að matbúa og bjóðum upp á heitan mat í hádeginu – að minnsta kosti alltaf plokkfisk og steiktan fisk. Við lögðum líka ríka á herslu á það að verslunin væri heimilisleg og undirstrikuðum það m.a. með parketi á gólfum og með því að klæða veggina með brenndum viðarplötum.“

Mamma þekkt fyrir plokkfiskinn

Sigurður, sem er ekki nema 27 ára gamall, hóf snemma að vinna hin ýmsu störf tengd sjávarútvegi. „Pabbi var með nokkra báta og ég ólst upp við veiðar og fiskvinnslu. Sautján ára gamall fór ég í fisktækniskólann og hef unnið við flest það sem hægt er að gera tengt fiski.“

Verslunin er hin glæsilegasta.
Verslunin er hin glæsilegasta. Víkurfréttir/Páll Ketilsson

Vitaskuld fékk Sigurður líka að hlaupa undir bagga í fiskbúð móður sinnar Hrafnhildar Gunnarsdóttur og gaman að sjá að hún kemur honum núna til hjálpar við nýja reksturinn. „Þetta er fjölskyldufyrirtæki og ég þræla mínum nánustu út,“ segir Sigurður glettinn. „Systir mín sér um eldhúsið og matreiðir heitu réttina, og maðurinn hennar stendur vaktina í afgreiðslunni. Ég er sjálfur á þeytingi við að redda fiski, snyrta og flaka eftir atvikum, og mamma – sem er fræg fyrir plokkfiskinn sinn – hjálpar okkur við að koma búðinni í gang á morgnana. Hún heldur líka uppi vissum aga og greinilegt að minni er um fíflalæti í fiskbúðinni þegar mamma er á svæðinu.“

Vildi vera sinn eigin herra

Sigurður segir heimamenn sýna versluninni mikinn áhuga og sumir venji komur sínar í búðina til þess eins að spjalla og sjá hvernig gengur, án þess endilega að vanta fisk þá stundina. „Í fimm ár hafa íbúar Reykjaness ekki haft um annað að velja en að ýmist aka til Reykjavíkur til að kaupa ferskan fisk eða þurfa að sætta sig við það sem stórmarkaðirnir á svæðinu hafa upp á að bjóða.“

Spurður hvers vegna maður á þrítugsaldri ákveður að opna fiskbúð segir Sigurður að hann hafi fengið sig fullsaddan af því að strita fyrir aðra. Loks fyllti það mælinn þegar hann var að aka vörubílsfarmi við einstaklega erfiðar aðstæður í janúar síðastliðnum.

Sigurður Magnússon segist hafa fengið sig full saddan af að …
Sigurður Magnússon segist hafa fengið sig full saddan af að stríta fyrir aðra. Víkurfréttir/Páll Ketilsson

„Þetta var ótrúlega leiðinleg ferð og varð til þess að ég gerði það upp við mig að opna fiskbúðina sem allra fyrst,“ segir hann en heppilegt húsnæði reyndist vera laust á Brekkustíg, steinsnar frá Vínbúðinni og Hamborgarabúllu Tómasar. „Við þurftum að taka rýmið rækilega í gegn og verslunarhúsnæðið var í rauninni bara stór geymur þegar við fengum það í hendurnar. Þarna athöfnuðum við okkur í þrjá mánuði og vorum alveg óvanir smiðir en lærðum heilmikið í leiðinni.“

Vilja eiga nóg af fiski í faraldri

Salan gengur prýðilega en Sigurður segir greinilegt að kórónuveirufaraldurinn hefur veruleg áhrif. Sigurður segir samdráttinn mestan hjá mötuneytunum sem versla við fiskbúðina en neytendur hafi líka dregið úr fiskkaupunum í þeirri bylgju smita sem núna gengur yfir. „Salan hefur dregist saman um 20-30% á síðustu 2-3 vikum. Ekki er að greina það að fólk sé að færa sig frá dýrari tegundum yfir í ódýrari, en aftur á móti sáum við það þegar fréttir bárust af fjölgun smita að margir gripu til þess ráðs að birgja sig upp af fiski til að geyma í frysti og eiga þá örugglega eitthvað gott í matinn sama hvað dynur á.“

Til að koma enn betur til móts við viðskiptavini sína í faraldrinum er Sigurður duglegur við að færa þeim fiskinn heim að dyrum og þrátt fyrir mikið streð sér hann alls ekki eftir þeirri ákvörðun að gerast fisksali. „Það er auðvitað alltaf mikið fyrir því haft að koma fyrirtæki á laggirnar en ef maður leggur sig fram við reksturinn þá er ekki von á öðru en að takist að láta þetta verkefni lifa mjög lengi.“

Fiskbúð Reykjaness býður uppá ýmsar kræsingar.
Fiskbúð Reykjaness býður uppá ýmsar kræsingar. Víkurfréttir/Páll Ketilsson
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg
25.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Skarkoli 1.853 kg
Þorskur 271 kg
Sandkoli 102 kg
Ýsa 8 kg
Samtals 2.234 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg
25.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Skarkoli 1.853 kg
Þorskur 271 kg
Sandkoli 102 kg
Ýsa 8 kg
Samtals 2.234 kg

Skoða allar landanir »