Hefði góð áhrif fyrir allt hagkerfið

Útlit er fyrir ágætis loðnuvertíð, að sögn Friðriks Mar Guðmundssonar, …
Útlit er fyrir ágætis loðnuvertíð, að sögn Friðriks Mar Guðmundssonar, framkvæmdastjóra Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði. Ljósmynd/Aðsend

„Við höfum verið þeirrar skoðunar að það verði vertíð í vetur og við byggjum það fyrst og fremst á því að 83 milljarðar einstaklinga hafi fundist í loðnumælingunni sem fram fór í fyrrahaust,“ segir Friðrik Mar Guðmundsson, fram­kvæmda­stjóri Loðnu­vinnsl­unn­ar á Fáskrúðsfirði, í samtali við 200 mílur.

„Það á að gefa viðunandi loðnuvertíð, þ.e.a.s. 300.000 til 400.000 tonn og jafnvel meira.“

Fregnir þess efnis að skipið Pol­ar Amar­oq hafi siglt fram á loðnu komi ekki á óvart. Málin muni svo skýrast enn betur í janúar. 

Friðrik Mar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar.
Friðrik Mar Guðmundsson, framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar. Ljósmynd/Aðsend

Hóflega bjartsýnir

„Það er náttúrulega auðveldast að ná utan um hana í janúar og þá fara væntanlega fjögur skip og reyna að ná utan um svæðið. Við erum bara hóflega bjartsýnir. Vísindin segja að það eigi að verða ágætis loðnuvertíð,“ segir hann.

Eftir loðnubrest undanfarin tvö ár mun vertíð hafa jákvæð áhrif fyrir atvinnustig fyrirtækisins, þótt vinnu sé ávallt að finna að austan: „Það eru alltaf næg verkefni,“ segir Friðrik.

„Ekki veitir af“

Þó skipti mestu máli að viðhalda markaðnum, sem er mjög dýrmætur.

„Hann er algjörlega tómur í hrygningaloðnu og loðnuhrognum í dag. Fyrirtæki á Íslandi hafa þjónustað þessa markaði í tugi ára þannig að það skiptir öllu máli að hafa vöru fyrir þessa markaði áfram,“ segir Friðrik. 

Felst ekki í þessu ákveðin innspýting í hagkerfið?

„Ef menn fá þrjátíu milljarða vertíð þá hefur það góð áhrif á alla, á Ísland hf. eins og ég kalla það. Fyrir landið í heild, ekki veitir af.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 24.4.24 436,69 kr/kg
Þorskur, slægður 24.4.24 566,23 kr/kg
Ýsa, óslægð 24.4.24 213,60 kr/kg
Ýsa, slægð 24.4.24 118,02 kr/kg
Ufsi, óslægður 24.4.24 168,00 kr/kg
Ufsi, slægður 24.4.24 205,91 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 24.4.24 228,36 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 6,89 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

24.4.24 Sunnutindur SU 95 Línutrekt
Þorskur 16.635 kg
Ýsa 451 kg
Steinbítur 211 kg
Ufsi 34 kg
Hlýri 26 kg
Keila 14 kg
Karfi 4 kg
Langa 3 kg
Samtals 17.378 kg
24.4.24 Sandfell SU 75 Lína
Þorskur 1.843 kg
Steinbítur 344 kg
Keila 55 kg
Ýsa 54 kg
Ufsi 35 kg
Karfi 16 kg
Hlýri 4 kg
Langa 2 kg
Samtals 2.353 kg

Skoða allar landanir »