SFS leggur 65 milljónir króna til loðnuleitar

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi ætla að leggja sitt af mörkum …
Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi ætla að leggja sitt af mörkum til að farið verði í loðnuleiðangur í desember. Ljósmynd/Ólafur Óskar Stefánsson

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) hefur ákveðið að bjóða Hafrannsóknastofnun jafnvirði 65 milljóna króna til loðnuleitar og -mælinga í desember og er styrknum ætlað að greiða að fullu fyrir úthald fjögurra mæliskipa í allt að 24 daga, kvörðun þeirra og vinnu sérfræðinga Hafrannsóknastofnunar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá SFS.

Í tilkynningunni segir að hætta sé á því að  mælingar verði „ónógar til þess að unnt sé að ráðleggja veiðar á loðnu“ í leiðangri Hafrannsóknastofnunar í janúar 2021, þar sem „tímabil vetrarmælinga er jafnan stutt og á tíma þegar veður eru válynd.“ Þá segir jafnframt þekkt að loðnan fari hratt yfir og að hegðun hennar sé óútreiknanleg. „Vera kann að hún sé fyrr á ferðinni nú en síðastliðin tvö ár.“

30 milljarðar í húfi

Benda samtökin á að mælingar á loðnustofninum hafa gengið brösuglega á síðustu tveimur árum og að það hafi gert það að verkum að engi loðnuvertíð varð tvö ári í röð, sem hefur ekki gerst frá því að loðnuveiðar hófust við Ísland.

Minnir SFS á leiðangurinn sem farinn var í nóvember hafi skilað sýnum sem gefa til „vísbendingar um góðar göngur kynþroska loðnu í lögsögunni.“ Sá leiðangur var farinn að frumkvæði SFS en í samstarfi við Hafrannsóknastofnun.

„Góð loðnuvertíð getur að líkindum aukið útflutningstekjur um 30 milljarða króna og margföldunaráhrif í hagkerfinu öllu eru að líkindum tvöföld eða þreföld, líkt og með auknum tekjum starfsmanna sjávarútvegsfyrirtækja, sveitarfélaga og þjónustuaðila sjávarútvegs,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,81 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 192,14 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,46 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,35 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Tryllir GK 600 Grásleppunet
Grásleppa 1.264 kg
Þorskur 164 kg
Skarkoli 115 kg
Rauðmagi 20 kg
Samtals 1.563 kg
25.4.24 Loftur HU 717 Handfæri
Þorskur 408 kg
Karfi 74 kg
Ufsi 35 kg
Samtals 517 kg
25.4.24 Von HU 170 Grásleppunet
Grásleppa 1.092 kg
Skarkoli 590 kg
Þorskur 502 kg
Ýsa 97 kg
Steinbítur 6 kg
Sandkoli 3 kg
Samtals 2.290 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,81 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 192,14 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,46 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,35 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Tryllir GK 600 Grásleppunet
Grásleppa 1.264 kg
Þorskur 164 kg
Skarkoli 115 kg
Rauðmagi 20 kg
Samtals 1.563 kg
25.4.24 Loftur HU 717 Handfæri
Þorskur 408 kg
Karfi 74 kg
Ufsi 35 kg
Samtals 517 kg
25.4.24 Von HU 170 Grásleppunet
Grásleppa 1.092 kg
Skarkoli 590 kg
Þorskur 502 kg
Ýsa 97 kg
Steinbítur 6 kg
Sandkoli 3 kg
Samtals 2.290 kg

Skoða allar landanir »