Birta tölvupóstsamskipti Seðlabanka og Kastljóss

Dagsetningar tölvupóstsamskiptanna ná yfir fimm vikna tímabil.
Dagsetningar tölvupóstsamskiptanna ná yfir fimm vikna tímabil. mbl.is/Golli

Samherji hefur birt á heimasíðu sinni tölvupóstsamskipti Kastljóss við Seðlabanka Íslands. Eru samskiptin á milli Ingibjargar Guðbjartsdóttur, þáverandi framkvæmdastjóra gjaldeyriseftirlits Seðlabankans og Helga Seljan fréttamanns Ríkisútvarpsins í aðdraganda umfjöllunar Kastljóss um verðlagningu á karfa.

Samskiptin fékk Samherji afhent frá Seðlabanka Íslands. Tölvupóstarnir á milli Helga og Ingibjargar eru frá 20. febrúar til 26. mars árið 2012. Í ljósi þessa er því haldið fram að Seðlabankinn hafi sagt ósatt fyrir héraðsdómi árið 2015 um að engin samskipti hefðu átt sér stað við fjölmiðla í aðdraganda húsleitar sem framkvæmd var 27. mars.

Þá er því m.a. haldið fram að heimildarmaður Ríkisútvarpsins hafi dregið ásakanir um undirverðlagningu til baka þremur vikum fyrir húsleit og sýningu þáttar Kastljóss um málið. Þrátt fyrir það hafi fullyrðingar um undirverðlagningu verið haldið fram í þættinum.

Þá segir að það liggi fyrir að Ingibjörg hafi undirritað beiðni um húsleit hjá Samherja og síðar kærur á hendur Samherja. Er því haldið fram að það hafi verið gert þó „tilteknum einstaklingum, var kunnugt um að ásakanir á hendur fyrirtækinu byggðust á rangfærslum,“ segir á heimasíðu fyrirtæksins.

Samherji var sýknaður af ásökunum um undirverðlagningu.
Samherji var sýknaður af ásökunum um undirverðlagningu.

Telur samskipti óeðlileg 

„Þessir tölvupóstar staðfesta það sem okkur hefur lengi grunað og höfum sagt áður. Þáverandi stjórnendur Seðlabankans héldu frá okkur gögnum og töldu það ekki eftir sér að fara vísvitandi með rangt mál fyrir dómstólum. Við birtum þessa tölvupósta núna svo fólk geti séð svart á hvítu að samskipti Ríkisútvarpsins og Seðlabankans í aðdraganda húsleitarinnar voru mjög óeðlileg. Þessar stofnanir höfðu samantekin ráð um árás á Samherja á grundvelli ásakana sem starfsfólk þessara stofnana vissi að enginn fótur var fyrir, sem er auðvitað grafalvarlegt,“ er haft eftir Þorsteini Má Baldvinssyni, forstjóra Samherja á heimasíðu fyrirtækisins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Hilmir ST 1 Grásleppunet
Grásleppa 4.144 kg
Þorskur 816 kg
Skarkoli 79 kg
Samtals 5.039 kg
19.4.24 Simma ST 7 Grásleppunet
Þorskur 402 kg
Grásleppa 170 kg
Skarkoli 30 kg
Steinbítur 16 kg
Samtals 618 kg
19.4.24 Kóngsey ST 4 Grásleppunet
Þorskur 1.213 kg
Grásleppa 404 kg
Skarkoli 77 kg
Samtals 1.694 kg
19.4.24 Ísak AK 67 Grásleppunet
Grásleppa 1.851 kg
Þorskur 840 kg
Skarkoli 59 kg
Samtals 2.750 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.4.24 448,91 kr/kg
Þorskur, slægður 19.4.24 562,68 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.4.24 307,10 kr/kg
Ýsa, slægð 19.4.24 191,66 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.4.24 155,16 kr/kg
Ufsi, slægður 19.4.24 271,61 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 19.4.24 134,32 kr/kg
Litli karfi 19.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.4.24 Sæfugl ST 81 Grásleppunet
Grásleppa 425 kg
Þorskur 183 kg
Skarkoli 61 kg
Steinbítur 25 kg
Samtals 694 kg
19.4.24 Benni ST 5 Grásleppunet
Grásleppa 3.845 kg
Þorskur 808 kg
Steinbítur 55 kg
Skarkoli 36 kg
Ýsa 3 kg
Samtals 4.747 kg
19.4.24 Gammur Ii Grásleppunet
Grásleppa 1.224 kg
Þorskur 434 kg
Samtals 1.658 kg
19.4.24 Fannar SK 11 Grásleppunet
Grásleppa 2.677 kg
Þorskur 208 kg
Steinbítur 13 kg
Þykkvalúra 4 kg
Skarkoli 4 kg
Ufsi 3 kg
Samtals 2.909 kg

Skoða allar landanir »