Skipverji á Sigurði VE slasaðist talsvert á hendi þegar hann var bitinn af hámeri á kolmunnamiðum suður af Færeyjum í lok nóvember. Siglt var með manninn til Þórshafnar í Færeyjum þar sem gert var að sárum hans á sjúkrahúsi. Aðgerðin gekk vel og er maðurinn á batavegi, en er enn óvinnufær.
Samkvæmt upplýsingum frá Ísfélaginu, útgerð Sigurðar VE, kom hámerin upp með trollinu og var búið að losa hana úr veiðarfærinu. Ekki virtist lífsmark með fiskinum og hugðist skipverjinn koma honum fyrir borð. Hámerin reyndist hins vegar á lífi og beit skipverjann í vinstri hendi svo mikið blæddi og sinar og vöðvar sködduðust.