Bráðamengun í Reyðarfirði á ábyrgð hafnarinnar

Töluverð olía var um borð prammanum sem sökk í Reyðarfirði. …
Töluverð olía var um borð prammanum sem sökk í Reyðarfirði. Ekki er ljóst hversu mikil olía hefur lekið í sjóinn. Ljósmynd/Landhelgisgæslan

„Enn sem komið er höfum við ekki fengið upplýsingar um hversu mikið af olíu er talið hafa farið í hafið, en um er að ræða dísilolíu,“ segir Ólafur A. Jónsson, sviðsstjóri hjá Umhverfisstofnun, í samtali við 200 mílur spurður hugsanlega mengun vegna fóðurpramma Laxa fiskeldis ehf. sem sökk í Reyðarfjörð í hvassviðri um helgina. Um borð voru um tíu þúsund lítrar af olíu.

Verkefnið nú sé að hreinsa svæðið og koma í veg fyrir frekari mengun, að sögn Ólafs.

Haft var eftir Jens Garðari Helgasyni, framkvæmdastjóra Laxa fiskeldis ehf., í gær að hann teldi ekki miklar líkur á að olía myndi leka út í sjóinn í miklu magni. Taldi hann líklegt að pramminn hefði sokkið vegna oflhleðsu sem afleiðing þess að ís hlóðst á hann í aftakaveðri.

Hann segir hafnaryfirvöld á Reyðarfirði bera ábyrgð á því að bregðast við mengunarhættu í firðinum. Var þessari tilhögun komið á í nýrri reglugerð sem færði út ábyrgðarsvið hafna þegar bráðamengunartilvik eru annars vegar.

Rætt við fulltrúa hafnarinnar

„Þarna er hætta á bráðamengun og þá virkjast lög um varnir gegn mengun hafs og stranda,“ segir Ólafur. „Þetta svæði skilgreinist sem hluti hafnarsvæðis þrátt fyrir að vera svona utarlega í firðinum,“ útskýrir hann.

Hann segir skýrt að það sé á ábyrgð hafnarinnar að koma í veg fyrir bráðamengun. „Við erum búin að vera í sambandi við fulltrúa hafnarinnar út af þessu máli og höfnin er að fylgjast með því sem er í gangi, en það er tryggingafélag eigenda prammans sem hefur tekið við verkefninu og er að reyna að bjarga verðmætum, bjarga prammanum og koma í veg fyrir mengun.“

Varðskipið Þór var til taks þegar pramminn fór að sökkva. Sjósetti áhöfnin léttabát Þórs og hafði öflugar sjódælur meðferðis. Þegar áhöfnin á Þór kom á staðinn var ekkert hægt að gera. Pramminn var þá orðinn fullur af sjó.

Þór hefur yfirgefið svæðið og siglir nú við landið norðanvert.



mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg
25.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Skarkoli 1.853 kg
Þorskur 271 kg
Sandkoli 102 kg
Ýsa 8 kg
Samtals 2.234 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Hólmi NS 56 Grásleppunet
Grásleppa 3.357 kg
Þorskur 383 kg
Ýsa 23 kg
Samtals 3.763 kg
25.4.24 Magnús HU 23 Grásleppunet
Grásleppa 3.836 kg
Samtals 3.836 kg
25.4.24 Rún NS 300 Grásleppunet
Grásleppa 1.853 kg
Þorskur 296 kg
Skarkoli 100 kg
Samtals 2.249 kg
25.4.24 Patrekur BA 64 Dragnót
Skarkoli 1.853 kg
Þorskur 271 kg
Sandkoli 102 kg
Ýsa 8 kg
Samtals 2.234 kg

Skoða allar landanir »