Fjárfesta fyrir 5 milljarða í Neskaupstað

Síldarvinnslan hefur ákveðið að hrinda af stað tæplega fimm milljarða …
Síldarvinnslan hefur ákveðið að hrinda af stað tæplega fimm milljarða fjárfestingu í húsnæði og búnaði í Neskaupstað til að auka afköst. mbl.is/Sigurður Aðalsteinsson

Síldarvinnslan hefur tekið ákvörðun um að stækka fiskimjölsverksmiðju fyrirtækisins í Neskaupstað, auka afköst við hrognavinnslu um helming og koma upp einingu í verksmiðjunni sem er hönnuð til að vinna afskurð frá fiskiðjuverinu. Heildarfjárfestingin mun hlaupa á 4,8 milljörðum króna og hefur þegar fengist starfsleyfi fyrir stærri verksmiðju.

Fjárfesting í fyrsta áfanga uppbyggingarinnar mun nema um 2,3 milljörðum króna, en í því felst að reisa tvö þúsund fermetra hús með tilheyrandi búnaði svo sem öflugri loftræstingu og lykteyðingarbúnaði, að því er fram kemur í tilkynningu á vef fyrirtækisins. Þá er einnig gert ráð fyrir að búnaður í smærri verksmiðjueininguna verði keyptur og settur upp í fyrsta áfanga.

Verksmiðjan eftir fyrirhugaða stækkun séð frá norðri. Nýbyggingar eru gular …
Verksmiðjan eftir fyrirhugaða stækkun séð frá norðri. Nýbyggingar eru gular að lit með dekkri þökum. Mynd/Síldarvinnslan

Áætlanir Síldarvinnslunnar gera ráð fyrir að tveimur milljörðum verði fjárfest í búnaði til að auka afkastagetu verksmiðjunnar í 2.380 tonn. Ekki er talið að framkvæmdirnar trufli núverandi starfsemi.

Fyrirtækið mun að lokum ráðast í framkvæmdir er snúa að stækkun hrognavinnslunnar. Meðal annars er fyrirhugað að stækka löndunarhús um 300 fermetra og fjárfesta í nýjum búnaði. Áætlað er að þessar fjárfestingar muni hlaupa á um 500 milljónum króna.

Verksmiðjan eftir fyrirhugaða stækkun séð frá vestri. Nýbyggingar gular að …
Verksmiðjan eftir fyrirhugaða stækkun séð frá vestri. Nýbyggingar gular að lit með dekkri þökum. Mynd/Síldarvinnslan

Fiskimjölsverksmiðjur of margar

Í tilkynningunni segir að fjárfestingarnar séu liður í hagræðingu í greininni og er talið að fiskimjölsverksmiðjur á Íslandi séu of margar.

„Síldarvinnslan lokaði verksmiðju sinni í Helguvík á síðasta ári og var það liður í hagræðingaraðgerðum. Á Íslandi er búið við þær aðstæður að verksmiðjurnar þurfa að geta unnið mikinn afla á skömmum tíma og er því nauðsynlegt að þær séu afkastamiklar. Einnig eru aðstæður oft þannig að einungis þarf að vinna afskurð frá manneldisvinnslu og til þess þarf ekki afkastamikla verksmiðju heldur er mikilvægt að geta unnið hráefnið jafnóðum,“ segir í tilkynningunni.

Húsnæði Síldarvinnslunnar er fyrirferðarmikið og setur svip sinn á Neskaupstað. …
Húsnæði Síldarvinnslunnar er fyrirferðarmikið og setur svip sinn á Neskaupstað. Stefnt er að mikilli stækkun. mbl.is

Fram kemur að þegar hafi verið fengið starfsleyfi fyrir verksmiðju í Neskaupstað sem á að geta afkastað 2.380 tonnum á sólarhring og er gert ráð fyrir að litla verksmiðjan afkasti 100 til 380 tonnum. Afköst verksmiðjunnar í Neskaupstað eru nú að hámarki 1.400 tonn á sólarhring.

„Hin auknu afköst munu gera kleift að vinna stóra farma á ásættanlegum tíma og litla verksmiðjan verður með sveigjanlegum afköstum þannig að unnt verður að vinna allt hráefni sem ferskast. Með þessu fyrirkomulagi ætti orkunýting að vera eins og best þekkist. Með tilkomu litlu verksmiðjunnar verður lögð áhersla á að auka gæði framleiðslunnar og þróa áfram aðferðir til að framleiða verðmætar próteinríkar afurðir,“ segir í tilkynningu Síldarvinnslunnar.

Það stefnir því í töluverða uppbyggingu á svæðinu en í nóvember lýsti Hafrannsóknastofnun áformum sínum um að koma upp nýrri starfsstöð í Neskaupstað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Tryllir GK 600 Grásleppunet
Grásleppa 1.264 kg
Þorskur 164 kg
Skarkoli 115 kg
Rauðmagi 20 kg
Samtals 1.563 kg
25.4.24 Loftur HU 717 Handfæri
Þorskur 408 kg
Karfi 74 kg
Ufsi 35 kg
Samtals 517 kg
25.4.24 Von HU 170 Grásleppunet
Grásleppa 1.092 kg
Skarkoli 590 kg
Þorskur 502 kg
Ýsa 97 kg
Steinbítur 6 kg
Sandkoli 3 kg
Samtals 2.290 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 25.4.24 425,86 kr/kg
Þorskur, slægður 25.4.24 527,13 kr/kg
Ýsa, óslægð 25.4.24 191,99 kr/kg
Ýsa, slægð 25.4.24 150,72 kr/kg
Ufsi, óslægður 25.4.24 122,07 kr/kg
Ufsi, slægður 25.4.24 172,26 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 25.4.24 162,06 kr/kg
Litli karfi 24.4.24 7,00 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

25.4.24 Tryllir GK 600 Grásleppunet
Grásleppa 1.264 kg
Þorskur 164 kg
Skarkoli 115 kg
Rauðmagi 20 kg
Samtals 1.563 kg
25.4.24 Loftur HU 717 Handfæri
Þorskur 408 kg
Karfi 74 kg
Ufsi 35 kg
Samtals 517 kg
25.4.24 Von HU 170 Grásleppunet
Grásleppa 1.092 kg
Skarkoli 590 kg
Þorskur 502 kg
Ýsa 97 kg
Steinbítur 6 kg
Sandkoli 3 kg
Samtals 2.290 kg

Skoða allar landanir »